Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Nýjustu fréttir

Kynning á samverustund

Alltaf samverustund í upphafi skóladags
Allir morgnar í öðrum bekk byrja með samverustund. Börnin 41 að tölu setjast á gólfið á sinn, ákveðna stað, ásamt kennurunum sínum. Í samverustund ræðum við um hvað er að gerast hverju sinni, förum yfir daginn, leggjum inn námsefni, ræðum atriði úr Uppbyggingarstefnunni, lærum ljóð og þulur og leysum lífsgátuna. Við syngjum mikið og ljúkum samverustund svo með nokkurra mínútna íhugun. Þar með eru allir tilbúnir til að takast á við verkefni dagsins.



Lesa meira

Vikupósturinn 09.02.12

Árshátíðarundirbúningur gengur vel. Börnin í 2. bekk sýna á tveimur sýningum, kl. 11:30 og 13:00, á sal skólans. Sýningin tekur um 15 mínútur og getið þið valið um þá sýningu sem hentar ykkur betur. Það ætti líka að vera rýmra um gesti þar sem einn árgangur sýnir í einu. Afar og ömmur og nánasta skyldulið barnanna eru því velkomið.

Lesa meira

Vikupóstur 02.02.12

Kæru foreldrar!
Til tilbreytingar tókum við okkur frí frá hefðbundnu Byrjendalæsi í þessari viku. Þess í stað höfum við unnið með einn málshátt á hverjum degi. Það eru að sjálfsögðu málshættir sem hafa lærdómsríkan boðskap s.s. drjúg eru morgunverkin, aumur er iðjulaus maður, að kunna ekkert er engin skömm en að vilja ekkert læra er skömm o.s.frv. :) Fram að árshátíð verða íslenskuverkefnin okkar tengd efninu sem börnin flytja þar.
Nú eru mörg börn að verða búin með Sprota 2A bæði nemendabók og æfingahefti. Við ætlum því að byrja að vinna í Sprota 2B næsta mánudag. Börnin koma fljótlega heim með Sprota 2A og þeir sem eiga eftir að ljúka við einhverjar blaðsíður gera það heima.
Eins og þið vitið erum við núna að æfa af fullum krafti hestalög og þulu fyrir árshátíðina okkar. Börnin eru mjög áhugasöm og eldsnögg að læra. Við erum mikið búin að ræða um búninga fyrir árshátíðina og er niðurstaðan komin. Það eru gallabuxur eða gallapils, köflóttar skyrtur, tóbaksklútur og kúrekahattur. Við förum alls ekki fram á að þið kaupið neitt en við vitum að oft leynist ýmislegt heima eða hjá vinum og vandamönnum.
Fljótt eftir helgi kemur efni frá 2. bekk á heimasíðu skólans, endilega fylgist með því.   
                                       Bestu kveðjur,
                                                  Ragnheiður og Sigrún                                



Mynd augnabliksins

picture_004.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn