Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Nýjustu fréttir

Föstudagspósturinn 18.maí

Héðan er allt gott að frétta, nema hvað :)

Iðin og yndisleg börn hafa brallað ýmislegt. Þau hafa hlustað á söguna „þú ert frábær“ og  lært heilmikið um samskipti og hve vanhugsuð orð eða gerðir geti sært en hrós og góð framkoma glatt, já við skulum koma fram við aðra eins og við viljum láta koma fram við okkur.

Lesa meira

Nýjar myndir í albúminu góđa ;)

Skemmtilegar myndir frá bókasafnsferðinni og líka frá ferðinni á Hólmasól!

Föstudagspósturinn 11.maí

Fjölbreytt og lærdómsrík vika að baki kæru foreldrar! Við hófum vikuna á skemmtilegri hringekju. Börnin kynntust 9 ára skólastrák frá Danmörku. Litlu myndbandi var varpað upp á töflu þar sem hann kynnti sig og sín helstu áhugamál. Hann bauð okkur í heimsókn til sín í Laveskov Alle. Með aðstoð Google Earth flugum við frá Íslandi til Danmerkur og alla leið heim að húsinu hans. Hann var reyndar ekki heima ;) sennilega í skólanum eins og önnur dönsk börn! Já! tæknin er algjört ævintýri! En þegar börnin ykkar voru farin að tala með dönskum hreim var komin tími til að skipta um stöð. Þá tók við fróðleikur um önnur Evrópulönd. Þau ferðuðust til stærstu heimsálfunnar Asíu. Þar var lítið til nokkurra landa en megináhersla var lögð á dýrategundina Pöndu. Unnið á fjölbreyttan hátt, m.a. horfðu þau áhugasöm á nokkur myndbrot. Lesa meira

Mynd augnabliksins

sdc13060.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn