Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Nýjustu fréttir

For - innritun í Framhaldsskóla

Nú þurfa 10. bekkingar að sækja um forinnritun í framhaldsskóla í næstu viku. Innritunin fer fram á vef Menntagáttar. Námsráðgjafi skólans hefur þegar sent bréf heim til foreldra í 10.bekk þessa efnis.  Fyrirspurnir vegna innritunarinnar er vísað til Steinunnar Hörpu námsráðgjafa.

Litlu jól á sal 18. desember verđa sem hér segir:

Gleđileg jól
Nemendur í  10. bekk mæta klukkan 10:00 í heimastofur

Klukkan 11:00 eiga allir að vera mættir á sal skólans, þar sem dansað verður í kringum jólatré. Skóladegi lýkur um klukkan 12:00 og Frístund verður opin fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.

Eftir þennan dag eru nemendur komnir í jólafrí og mæta aftur í skólann þriðjudaginn 5. janúar 2010 samkvæmt stundaskrá
Viðtalsdagur verður miðvikudaginn 13.janúar 2010 og verða boð send foreldrum á fyrsta skóladegi á nýjum ári.

Morgunmóttaka fyrir 8. -10. bekk


Morgunmóttaka verður fimmtudaginn 12. nóvember hjá 8. - 10. bekk Brekkuskóla kl. 8:00 - 9:00. Kaffi og brauðbollur verða seldar í matsal og kennslustofur bekkjanna á þriðju hæð til vinstri verða opnar. Morgunmóttaka er óformleg móttaka þar sem nemendur, kennari og foreldrar koma saman í skólanum og eiga góða stund.

Mynd augnabliksins

sdc13597.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn