Ljóðagerð
Í tilefni af morgunmóttöku skrifuðu nemendur ljóð um hvernig það er að vera þau. Mörg falleg og vel skrifuð ljóð litu dagsins ljós.
Lesa meiraÍ tilefni af morgunmóttöku skrifuðu nemendur ljóð um hvernig það er að vera þau. Mörg falleg og vel skrifuð ljóð litu dagsins ljós.
Lesa meiraSæl og blessuð.
Síðasta vikan að líða og bara tveir dagar eftir af skólaárinu. Á mánudaginn fórum við í kuldanum í Naustaborgir með Sigfrið kennara þar sem við fórum í leiki og grilluðum brauð. Síðan fengum við ykkur foreldra í heimsókn á ferilmöppudaginn, þökkum við kærlega fyrir þá heimsókn. Á miðvikudaginn fórum við svo á frjálsíþróttamót í Boganum og stóðu þau sig svakalega vel, lentu í öðru sæti. Í gær nutum við lífsins og sólarinnar, borðuðum skúffukökur og drukkum djús. Í dag fórum við í Brynju í boði foreldrafélagsins og fengum okkur göngutúr.
Þar sem spáin er frekar leiðinleg fyrir mánudaginn þá þurfum við vara áætlun. Krakkarnir fengu að velja hana og varð fyrir valinu: horfa á kvikmynd, koma í furðufötum og auðvitað frjálst nesti.
Myndir frá liðinni viku eru komnar inn á heimasíðuna okkar.
Góða helgi,
Sunna, Þorgerður og Arnþrúður Eik