Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Álfalandsfréttir


Álfalandsfréttir

Nú er allt komið á fullt í vinnu með Álfalandið okkar.  Við byrjuðum á upprifjun og fórum svo í að ræða skattamál og veltum fyrir okkur ýmsum spurningum t.d. viljum við hafa skóla, sjúkrahús og lögreglu á Álfalandi ?  Hvernig eigum við að borga fyrir það ?  Þurfum við ekki að fá okkur vinnu til að fá laun ?  Fáum við alla peningana í okkar vasa sem við fáum borgaða ? o.s.frv.

Vikan 29. september - 3. október

Í þessari viku var samkeppni um hvernig gjaldmiðill Álfalands á að líta út.  Búið var að ákveða að hann skyldi kallast Álfakrónur en eftir var að ákveða útlitið.  Allir nemendur gerðu seðil og smámynt i keppnina og síðan var kosið.  Fimm stigahæstu seðlarnir fóru svo á kjörseðla og formleg kosning fór fram í lok vikunnar.  Tveir seðlar voru jafnir að stigum og var ákveðið að nota þá báða (sjá myndasíðu)

Vikan 6.-10. október

Allir í bekknum komu með uppástungur um hvaða störf þyrfti að vinna á landinu okkar og hver og einn velti því fyrir sér hvað hann vildi gera til að afla sér tekna.  Eftir þessar pælingar voru það hin fjölbreyttustu störf sem unnin eru á landinu okkar. Nú er verið að vinna í því að framleiða peninga og á fimmtudaginn fá allir útborgað í fyrsta sinn.  Allir nemendur gera sinn launaseðil og borga sína skatta svo hægt verði að fara að byggja skóla, sjúkrahús og lögreglustöð á Álfalandi.

Vikan 13. - 17. október

Í vikunni veltum við því fyrir okkur hvort við þyrftum að eiga debet- og kreditkort á Álfalandi. Við ræddum muninn á debet- og kreditkortum, hvort öll kort væru eins í útliti, tilgang þess að hafa myndir og rithandarsýnishorn á kortunum o.s. frv. Allir voru sammála um það að kannski væri gott að eiga debetkort því þar geymum við peninga sem við eigum t.d. launin okkar. Allir gerðu sitt eigið debetkort og verða næstu laun sem greidd verða á  Álfalandi lögð inn á það. Við ætlum að láta kreditkortið bíða um sinn því þar þurfum við að fá lánað. Nemendur hönnuðu líka húsin sín og verða þau búin til í smíðastofunni og máluð í myndmennt í næstu viku.

 

Vikan 24. - 28. október

Í þessari viku töldu allir nemdur fram til skatts á Álfalandi.  Miklar pælingar voru í kring um það og margir skemmtilegir punktar komu frá krökkunum.  Hver og einn þurfti að fylla út sína skattaskýrslu með tilliti til starfs.  Vangavelturnar voru helst tengdar spurningunni: hverjar eru eignir okkar og skuldir ?.  Hvað af eignum okkar við ættum að setja á skýsluna o.s.frv. og hvort það gæti verið mögulegt að við ættum fyrir öllu þessu sem við skráðum eða þurftum við kannski að fá eitthvað að láni ? 

 Í næstu viku tökum við okkur frí í landnáminu og sinnum öðrum aðkallandi verkefnum.

25. nóvember

Úbbs, tíminn er svo sannarlega fljótur að líða.  Í þessum mánuði hefur farið fram fjölbreytt vinna á Álfalandi.  Nemendur eru að klára húsin sín, mála og gera þau fín í myndmennt.  Rædd voru menntamál og trúmál og unnin verkefni í tengslum við þá umræðu.  Eins og alltaf þá kemur maður ekki að tómum kofanum hjá börnunum.  Mjög fjörugar umræður sköpuðust þessu tengdu og alveg órtúrlegt hvað börnin vita og hverju þau eru að velta fyrir sér.   Í menntamálaumræðunni komu skemmtilegir punktar eins og:  Okkur líður betur ef við lærum eitthvað, við verðum öruggari ef við lærum eitthvað, við þurfum að vera dugleg að læra til að fá þá vinnu sem við viljum og svo við getum tekið bílpróf o.s.frv.  Í trúmálaumræðunni voru börnin sannfærð um það að allir trúi á eitthvað en ekki endilega það sama.  Í þessari síðustu viku nóvembermánaðar ætlum við svo að ræða heilbrigðismál.

Nú nálgast jólamánuðurinn óðfluga og allt skólastarf að taka á sig jólalegra yfirbragð :-)

 

Vikan 12.- 16. janúar

Núna erum við að læra um þjóðfána, sameiningartákn hverrar þjóðar.  Við byrjuðum á íslenska fánanum.  Rætt var um hvað litirnir í fánanum tákna, umgengni við fánann og við hvaða tilefni við flöggum honum.  Álfaland þarf að eiga sinn fána og því var farið í mikla hönnunarvinnu.  Hver og einn nemandi gerði sinn fána fyrir Álfaland og skrifaði um hann þ.e. fyrir hvað litirnir stæðu sem urðu fyrir valinu o.s.frv.  Fánarnir voru svo hengdir upp í stofunni hver öðrum fínni og í framhaldinu verður kosið um þjóðfána Álfalands - gríðarlega spennandi.

Vikan 25.- 31. janúar

Nú erum við búin að kjósa okkur þjóðfána og allir hafa útfært vinningsfánann á efni.  Í vikunni leggjum við svo lokahönd á fánann og málum hann.  Verkefni vikunnar er líka að ræða um þjóðsöngva og sett verður af stað samkeppni um þjóðsöng Álfalands.   Við byrjum á því að velja okkur lag og svo fara allir í textavinnu.  Sú vinna getur verið einstaklings- eða hópvinna.  Þegar allar tillögur að þjóðlagi fyrir Álfalands hafa skilað sér verður kosið að nýju.

Vikan 1.-6. febrúar

Búið er að velja lag sem nota á í þjóðsöng Álfalands og fyrir valinu varð lagið við "Öxar við ána".  Textagerð er í fullum gangi og hafa fimm textar skilað sér á borð kennarans.  Á fimmtudag syngjum við saman lögin og skoðum textana og svo verður kosið.  Í framhaldinu þurfa allir að læra lag og texta þjóðsöngsins sem flutt verður á þjóðhátíðnni okkar í apríl.  Stefnan er að fá Ragnar tónmenntakennara í lið með okkur í söngæfingunum þar sem söngrödd umsjónarkennara er ekki upp á marga fiska.

Vikan 9.-13. febrúar

Eins og svo oft fara hlutirnir ekki eins og áætlað var.  Við náðum ekki að kjósa um texta þjóðsöngsins í síðustu viku og gerðum það því í dag 12. febrúar.  Mikil spenna lá í loftinu þegar kosningin fór fram.  Allir textar voru sungnir  og krakkarnir völdu svo þann texta sem þeim fannst passa best við  Álfaland

 

Vikan 16. - 20. febrúar

 

Í tengslum  við umfjöllun um þjóðbúninga var miðvikudagurinn notaður í að þæfa húfur sem mun vera hluti af þjóðbúningi hvers lands.  Opnað var á milli stofa og nemendur hönnuðu og þæfðu hver sína húfu með aðstoð kennara.  Mikið fjör var í vinnunni enda mikið sullað í sápu og vatni.  Útkoman var frábær og allir virtust glaðir eftir vel unnið verk.  Í næstu viku verður vetrarfrí.

 

 

 

 

Mynd augnabliksins

dsc01668.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn