Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

                        Nýtt land - ný þjóð

Í þriðja bekk Brekkuskóla er farin sú leið að kenna samfélagsfræði með landnámsaðferð.  Höfundur kennsluaðferðarinnar er Herdís Egilsdóttir.  Því má halda fram að aðrar greinar séu einnig kenndar með þessari aðferð því hún getur innihaldið allt sem við kemur námi barna.  Vinnan hófst í fyrra þegar börnin voru í 2. bekk.  Þá urðu til þrjú lönd Álfaland, Máney og Risaeðlueyja.

Hér koma nokkur orð um landnámsaðferðina sem eru tekin upp úr bókinni Nýtt land – ný þjóð. Landnámsaðferðin – samþætting námsgreina í grunnskóla. 

Landnámsaðferðin er merkileg kennsluaðferð.  Hún sameinar í einni aðferð margar helstu hugsjónir skólamanna sem setja á oddinn skilning og sjálfstæða hugsun fremur en glóru- og sundurlausa staðreyndaítroðslu.  Einn af þeim skólamönnum sem tvímælalaust má finna stað í grunnhugmyndinni að landnámsaðferðinni er bandaríski heimspekingurinn John Dewey.  Hagnýting þekkingar, virkni nemenda, tilgátusmíð og rannsókn sem stjórnast af löngun til að vita meira, eru nokkur af kjöroðum Dewey sem höfð eru að leiðarljósi í landnámsaðferðinni. 

Meginmarkmiðið með landnámsaðferðinni er að efla hjá börnum sjálfstæða hugsun, að gera þeim kleift að leysa raunveruleg vandamál á eigin forsendum, að þjálfa börnin í viðhorfum sem skapa víðsýni og sjálfsvirðingu.  Í landnámsaðferðinni er samræða mikið notuð og í nýju landi eru eins og gefur að skilja mörg siðferðisspursmál sem landnemarnir þurfa að taka afstöðu til.   Einn af aðalkostunum við þessa aðferð er hversu mikið þar rúmast af raunverulegum viðfangsefnum.

(Tekið úr lokaorðum e. Sigurð Björnsson bls. 75)

Mynd augnabliksins

sdc13079.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn