Febrúar2009
Þjóð verður að eiga þjóðbúning, þjóðsöng og jafnvel þjóðdans. Kraftar okkar hafa farið í þetta síðustu vikurnar, við fræddumst um íslenska búninginn og þjóðsönginn. Í framhaldi af því þæfðum við okkur húfur sem verða einkennisfatnaður eyjaskeggja. Auk þess sömdum við þjóðsöng og vorum sko ekkert lengi að því enda margir nemendur mjög hagmæltir. (Við fengum lagið að láni en það er aukaatriði og þess vegna innan sviga:-))
Janúar 2009
Nú erum við að læra um þjóðfána, byrjuðum á að fræðast um íslenska fánann, hvað litirnir í honum tákna, virðinguna sem við sýnum fánanum og hvernig hann er sameiningartákn þjóðarinnar. Börnin ákváðu síðan að búa til fána fyrir Máney. Það eru að fæðast listaverk í þessum rituðu orðum og verða þau öll hengd upp á vegg og kosið um væntanlegan þjóðfána Máneyjar í næstu viku.
Desember 2008
Síðustu vikurnar höfum við fjallað um menntamál, trúmál og heilbrigðismál á eyjunni okkar.
Við höfum rætt um hvernig þessu er háttað á Íslandi og hvernig við viljum hafa þetta hjá okkur. Miklar og skemmtilegar umræður hafa spunnist í tímum.
Um menntamál kom fram að maður lærir eitthvað nýtt t.d að verða það sem maður ætlar sér. Sumir fara í doktorsnám til útlanda eða Reykjavíkur. Mamma og pabbi geta kennt börnunum sínum en ekki allt. Kennarar og iðnmeistarar kenna ýmis störf.
Ákveðið var að allir fengju að ráða því hverju þeir trúa. Við ræddum um ásatrú og hlutverk kirkju og presta í okkar samfélagi. Börnin nefndu að biðja, jarða, skíra, gifta, ferma og messa. Og einn nemandi sagði: „Trú von og kærleikur, maður á að vera góður.“ Það voru lokaorðin á vinnublaðinu.
Í bekknum reyndist vera sérfræðingur í heilbrigðismálum og hér kemur orðrétt það sem sett var á vinnublað um þau.Veikindi eru þegar sýklar sem eru gerlar eða veirur komast inn í líkamann. Þegar einhver veikist er hægt að fara til læknis og fá ráð eða lyf. Við magapest getur verið gott að drekka kók. Hægt er að setja kartöflur á vörtur. (Þessi lyf voru einnig nefnd): Astmalyf, sýklalyf, pensillín, bílveikistöflur og ýmis krem. Svarti dauði var mjög hættuleg veiki.
Október 2008
Í haust hafa íbúar á Máney eignast gjaldmiðil og eru nú að gera það upp við sig hvaða störfum þeir ætla að sinna. Fyrir störfin munu þeir fá greidd laun en þar sem ákveðið hefur verið að reka skóla, sjúkrahús og lögreglu á eyjunni var samþykkt að greiða hluta til þess rekstrar. Það verður semsagt greitt í ríkissjóð sem mun síðan sjá um að greiða fyrir rekstur á þessum stofnunum.

