Febrúar 2009
Undirbúningur fyrir þjóðhátíðina okkar fer hægt og rólega af stað enda er nægur tími. Við höfum verið að semja þjóðsöng, hanna þjóðbúning og mála þjóðfána allt þetta er búið að vera rosalega skemmtilegt og eru þau buin að læra mikið af þessu. Gaman gaman. Þjóðhátíðin okkar er fimmtudaginn 2.apríl 2009.
Meiri upplýsingar síðar. Það eru nýjar myndir hjá okkur.
Janúar 2009
Nú er komið nýtt ár og nýjar hugsjónir, við fórum beint í það að hanna okkar eigin þjóðfána margar tillögur bárust og þurfti að skera úr um hvaða fánar færu á kjörseðil með forkosningum. Allt var þetta ofsalega gaman og spennandi. Í dag 15.janúar fengum við að sjá Þjóðfána Risaeðlueyjunnar. Hann sýnir jörðina í allri sinni dýrð og tákna litir hans eldinn í iðrum jarðar, jöklana og hafið sem umlykur eyjuna, fegurð góðurs og alla þá sólargeisla sem skýna svo skært. Fánareglur urðu auðvitað einnig að vera til því við berum mikla virðingu fyrir fánanum okkar.
Endilega skoðið myndirnar.
Á næstu vikum förum við í þjóðbúningahönnun og þess háttar. Gaman, gaman.
26.sept - 09.október
Það er allt að komast á gott skrið hjá okkur á eyjunni fögru. Við erum mikið búin að tala um peninga, debet- og kredit kort, laun og skatta. Þetta er allt saman liður í góðu og staðföstu samfélagi. Það var haldin allsherjar samkeppni um útlit seðilsins og hvað hann ætti að heita. Það komu mörg frábær nöfn til greina en Risaeðlukróna vann yfirburða sigur. Á eyjunni eiga allir debet og kredit kort og geta fengið innborguð laun á debet kortin sín. Það var farið yfir muninn á debet og kredit, hvort við þurfum að borga af þeim eða eiga inneign.
Það er ekki hægt að borga út laun nema fyrir vinnu þannig að við rifjuðum upp frá því í vor hvernig störf við þurfum á eyjunni. Það komu mjög margar spurningar um hvernig ætti að borga laun til allra ríkisstarfsmannanna og þá fóru skatta umræður í gang og var því ákveðið að 30 % skattur væri gagnlegur á eyjunni okkar. Síðan fengu þau sín fyrstu laun með tilheyrandi launaseðli. Af launum sínum þurftu þau síðan að borga skatt (Sunnu) 30% sem þau gerðu samviskusamlega.
Þetta er búið að vera ofsalega gaman og fróðlegt.
Það eru myndir af þessum herlegheitum inn á Myndir.

