4. fundur stjórnar Foreldrafélagsins í Brekkuskóla skólaárið 2010-2011.
Haldinn í Brekkuskóla 4/10/2010 kl: 17:30
Mættir: Magni R. Magnússon formaður (MRM), Hafdís Bjarnadóttir varaformaður (HM), Drífa Þórarinsdóttir ritari (DÞ), , Sigmundur Kr. Magnússon gjaldkeri (SKM), Agla María Jósepsdóttir (AMJ), Friðbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir (FJS). Bóthildur Sveinsdóttir (BT) og Árni Jón Erlendsson (ÁJE).
Fjarverandi: Valdís Jónsdóttir (VJ)
- Magni minnti á fund um einelti á vegum Samtaka, miðvikudaginn 6. október í sal Brekkuskóla. Auglýsing var send á alla foreldra barna í grunnskólum Akureyrar.
- ákveðið að rukka árgjald foreldrafélagsins í nóvember og verður sama upphæð og undanfarin ár, 1750 krónur. Bóthildur mun koma nýjum gjaldkera inn í starfið og þökkum við Bóthildi góð störf á liðnum árum.
- Hreyfistrætó er komin í gang. Engin úr undirbúningshópi foreldra kom á fundinn. Hafdís hefur verið í sambandi við undirbúningshópinn og mun foreldrafélagið fylgjast með gangi mála.
- Magni velti upp umræðu um Bolamálið mikla sem kom í fjölmiðlum og í kjölfarið virtust margar spurningar brenna á fundarmönnum og því ákveðið að óska eftir Jóhönnu skólastjóra á næsta fund. Drífa mun senda henni fundarboð.
Fundi slitið
Fundargerð ritaði Drífa þórarinsdóttir

