Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

6. fundur. Desember 2010

5.  fundur stjórnar Foreldrafélagsins í Brekkuskóla skólaárið 2010-2011.

Haldinn í Brekkuskóla 6/12/2010 kl: 18:00

Mættir:  Magni R. Magnússon formaður (MRM), Hafdís Bjarnadóttir varaformaður (HB), Drífa Þórarinsdóttir ritari (DÞ), Sigmundur Kr. Magnússon gjaldkeri (SKM), Agla María Jósepsdóttir (AMJ), Árni Jón Erlendsson (ÁJE).Friðbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir (FJS)

Fjarverandi: Valdís Jónsdóttir (VJ).

  1. Hreyfistrætó. Ákveðið var að verkefnið Hreyfistrætó hættir, allavega í bili. Ástæðan fyrst og fremst þátttökuleysi. Foreldrafélagið þakkar þeim foreldrum og börnum sem tóku þátt í verkefninu. Vonandi verður grundvöllur síðar til að endurvekja Hreyfistrætó. Drífa mun skrifa smá tilkynningu og þakkir til foreldra sem verður sett á heimasíðu skólans.

  2. Sigmundur, gjaldkeri, gerði grein fyrir fjárhagslegri stöðu félagsins. Ákveðið var að greiða út 300.000 krónur til skólans fyrir skápum sem settir voru upp síðastliðið sumar fyrir elstu nemendurna. Samþykkt var síðastliðið skólaár að veita styrk til verkefnisins þar sem stjórn félagsins taldi mikilvægt, af heilsufarsástæðum, að nemendur hefðu geymslustað fyrri bækur og annað sem þeir þurfa að hafa með sér stundum daglega í skólann.

  3. Magni hafði fengið fyrirpsurnir varðandi styrki í ferðasjóði. Foreldrafélagið hefur styrkt hvert barn um 1000 krónur í skólaferðalaa í 7 bekk og 10 bekk og reyndar 4 bekk ef farið er í Kiðagil. Sækja skal styrki til gjaldera.

  4. 1-2 bekkjarfulltrúa á að kjósa fyrir hvern bekk að hausti. Eitthvað virðist mismunandi hvernig staðið er að þeirri kosninu og í sumum bekkjum eru ekki bekkjarfulltrúar heldur hafa foreldrar skipt með sér verkum yfir veturinn. Í raun ætti foreldrafélagið að vera búið að funda með bekkjarfulltrúum en þar sem þetta er eitthvað á reiki ætlar Drífa að óska eftir upplýsingum varðandi bekkkjarfulltrúa og koma með þær á næsta fund í janúar 2011. Ákveðið verður í kjölfarið hvenær fundað verður með þeim.

  5.  Magni fékk fregnir af því að foreldrafélög í Hafnarfirði leituðu eftir að bæjarstjón viðkomandi sveitarfélags bannaði með öllu að skemmtanir fyrir börn yngri en 20 ára séu haldnar á stöðum þar sem vínveitingarleyfi er til staðar. Þetta var rætt og var niðurstaða stjórnar að slíkt ætti ekki að ver í höndum foreldrafélaga heldur skulu foreldrar sjálfir ákveða hvort barn þeirra fer á ákveðnar samkomur eða skemmtanir. Einnig kom fram það sjónarmið að t.d. eru haldin jólaböll fyrir börn, tónleikar og aðrar skemmtanir þar sem vínveitingarleyfi er til staðar. Það eru þeir sem reka skemmtistaðina sem halda ákveðnar samkomur eða skemmtanir fyrir börn þar sem þeir eru að ráða listamenn í vinnu og slá tvær flugur í einu höggi. Stjórnin veltir fyrir sér hver eigi þá að halda þessar skemmtanir og hvar.

         Fundi slitið 19:00

                                                        Fundargerðina ritaði Drífa Þórarinsdóttir

Samtaka

Mynd augnabliksins

picture_004.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn