Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

7. fundur. Janúar 2011

7. fundur stjórnar Foreldrafélagsins í Brekkuskóla skólaárið 2010-2011.

Haldinn í Brekkuskóla 10/01/2011 kl: 17:30

Mættir:  Magni R. Magnússon formaður (MRM), Drífa Þórarinsdóttir (DÞ), Hafdís Bjarnadóttir varaformaður (HB), Sigmundur Kr. Magnússon gjaldkeri (SKM), Agla María Jósepsdóttir (AMJ), Friðbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir (FJS).

1. Foreldrafulltrúar. Stjórn félagsins hefur ekki hitt foreldrafulltrúa bekkja þetta skólaárið. Stjórnin gerði könnun á hverjir væru fulltrúar bekkja og kom í ljós að í mörgum bekkjum er enginn foreldrafulltrúi heldur hafa foreldrar skipt á sér verkum í skipulagningu viðburða, sem er gott. Samt sem áður er mikilvægt að tveir foreldrafulltrúar séu skipaðir fyrir hvern bekk, þeir hitti stjórnina og fari yfir stöðu skólans varðandi ýmis málefni. Sjtórnin hefur ákveðið að endurskoða handbók foreldrafulltrúa fyrir næsta haust sem er aðgengileg á heimasíðu skólans. Handbókin verði með helstu upplýsingum fyrir foreldrafulltrúa og þannig gerð að ekki þurfi að uppfæra hana árlega. Upplýsingar um stjórn og skipurit skólans verði á heimasíðunni og uppfærð hvert haust.  Stjórnin mun leggja til við skólastjóra að allir kennarar fari á fyrsta fund að hausti með óútfyllt blað, hannað af stjórn foreldrafélagsins, þar sem skrá skal tvo foreldrafulltrúa og einnig verði ákveðnir tveir til fjórir viðburðir sem foreldrar skipta með sér verkum að skipuleggja.

2. Skápamál. Skáparnir sem settir voru upp síðasliðið sumar hafa nýst nemendum vel og hafði stjórnin eyrnamerkt 300.000 krónum í það verkefni. Í lok árs var staða skólans þannig að skólastjóri, Jóhanna María Agnarsdóttir, sá sér fært að greiða skápana að fullu. Stjórnin ákveð að 300.000 krónurnar verði áfram eyrnamerktar skólanum og mun ræða við skólastjóra hvernig þeirri upphæð skuli varið.

3. ÍSÍ- Íþróttaskóli. MRM og HB sátu fund Samtaka í desember þar sem Viðar Sigurjónsson greindi frá hugmyndum sambandsins um samfellu milli skóla- og íþróttastarfs. Samtaka hvatti fulltrúa foreldrafélaganna til að kynna þessar hugmyndir í hverjum skóla. Eftir léttar umræður í stjórn Brekkuskóla setti stjórnin þessar tillögur fram: Stórn Brekkuskóla leggur til að Samtaka haldi málþing þar sem öll foreldrafélög skólanna á Akureyri koma sama, að það sé betra heldur en að hver og einn skóli sé að reyna að berjast í því að koma þessu á hjá sér með misjöfnum árangri. Stjórnin leggur til að kallaðir  verði saman allir þeir sem við teljum að málinu koma og skipulagðar verði umræður eins og voru á tölvunotkunar- og eineltisfundunum.

4. Skólastjóri boðaður á fund. Drífa tók að sér að boða Jóhönnu Marí Agnarsdóttur á næsta fund stjórnar sem er þann 7. febrúar 2011. Í fundarboði er óskað eftir viðræðum um skápamál og hugmynd að málþingi í Brekkuskóla á vegum Samtaka.

Fundi slitið 19:00

                                         Fundargerð rituð af Drífu Þórarinsdóttur

Samtaka

Mynd augnabliksins

sdc13464.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn