8. fundur stjórnar Foreldrafélagsins í Brekkuskóla skólaárið 2010-2011.
Haldinn í Brekkuskóla 07/02/2011 kl: 17:30
Mættir: Drífa Þórarinsdóttir (DÞ), Hafdís
Bjarnadóttir varaformaður (HB), Sigmundur Kr. Magnússon gjaldkeri (SKM), Agla María Jósepsdóttir (AMJ), Friðbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir (FJS). Árni Jón Erlendsson (ÁJE).
Jóhanna María Agnarsdóttir, skólastjóri, sat fundinn að ósk
stjórnar.
Magni R. Magnússon formaður (MRM) var fjarverandi.
Valdís Jónsdóttir (VJ) hefur ekki mætt á neinn fund í vetur og lítur stjórnin svo á að hún sé hætt störfum fyrir félagið. Ef Valdís óskar eftir að halda áfram störfum með stjórninni er hún hjartanlega velkomin en skal þá hafa samband við formann þar sem hann boðar til funda.
1. Skápamál. Fjárhagsleg staða Brekkuskóla í lok ársins 2010 var á þá leið að skólastjóri greiddi skápana að fullu en stjórn Foreldafélags Brekkuskóla hafði lagt 300.000 krónur til. Í samráði við Jóhönnu, skólastjóra, var ákveðið að settir yrðu upp fleiri skápar og peningurinn færi því eins og ráðgert var, í skápa. Skáparnir hafa að sögn Jóhönnu nýst nemendum vel og upplagt að setja upp fleiri til að sinna stærri hóp nemenda.
2. Málþing Samtaka. Stjórnin ræddi við Jóhönnu um málþing um samfellu milli skóla- og íþróttastarfs. Jóhanna lýsti ánægju sinni yfir því og samþykki yfir að málþingið yrði haldið í Brekkuskóla í mars 2011.
3. Önnur mál. Stjórnin ræddi við Jóhönnu um stöðu skólans í kjölfar mikillar umræðu um sparnað, sameiningar og minna fjármagns inn í skólana. Umræðan fór um víðan völl en þar sem bæjarstórn hefur ekki gefið út hvaða aðgerðir verður farið út í ríkir mikil óvissa. Skýrsla hefur verið gefin út eftir samtöl við skólastjóra allra leik- og grunnskólastjóra um leiðir til úrbóta. Búið er að setja á fót nefnd til að fara yfir þá skýrslu og skila inn niðurstöðum, líklegast á vordögum. Eina sem Jóhanna vissi var að búið er að skerða fjármagn skólanna nú þegar og sá hún ekki hvernig mögulegt væri að halda úti óbreyttu skólastarfi yrði klipið meira af fjármagni til skólanna.
Fundi slitið
fundargerð rituð af Drífu Þórarinsdóttur

