Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

9. fundur. Mars 2011

9.  fundur stjórnar Foreldrafélagsins í Brekkuskóla skólaárið 2010-2011.

Haldinn í Brekkuskóla 7/03/2011 kl: 18:00

Mættir:  Magni R. Magnússon formaður (MRM), Hafdís Bjarnadóttir varaformaður (HB), Drífa Þórarinsdóttir ritari (DÞ), Sigmundur Kr. Magnússon gjaldkeri (SKM), Agla María Jósepsdóttir (AMJ), Árni Jón Erlendsson (ÁJE). Friðbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir (FJS).

1. Málþing Samtaka. Ákveðið hefur verið að málþing Samtaka um samfellu skóla- og íþróttastarfs verður haldið 23. mars næstkomandi í Brekkuskóla. Veitingar: Kaffi og kleinur.

2. Bréf frá foreldrum í 10. Bekk. Stjórninni barst bréf frá foreldrum barna í 10. bekk um hvernig staðið var að árshátíð skólans. Í bréfinu bentu foreldrar á nokkra þætti sem þeir voru ósáttir við og hvað má betur fara þegar hátíðir á vegum skóla eru skipulagðar og haldnar. Foreldar eru fyllilega sáttir við þátttöku í slíkum viðburðum en fannst skólinn hafa brugðist að mörgu leiti, bæði við skipulag og framkvæmd. Búið er að ákveða fundartíma þar sem skólastjóri, kennarar, foreldrar auk fulltrúum frá skólaskrifstofu munu funda um málið. Stjórnin fór yfir bréfið og er sammála foreldrum um að mikilvægt sé að viðburðir séu vel skipulagðir svo vel megi fara. Stjórnin óskar eftir að fulltrúi frá foreldrafélaginu sitji fundinn.

3. Gjöf til útskriftarnema. Stórnin ákvað að öll börn fengju barmmerki við útskriftina, líkt og í fyrra.

4. Söfnun v/Nýjasjálands. Beiðni kom frá Vigdísi (foreldri í Brekkuskóla) um að foreldrafélagið kæmi að söfnun fyrir íslenska fjölskyldu sem missti allt sitt í jarðskjálfta á Nýja Sjálandi. Stjórnin ákvað að leggja til fjármagn í t.d. kostnað af bakstri eða öðru sem yrði ákveðið í samráði við 10. bekk sem stendur að söfnunni enda fyrrum bekkjarfélagar þeirra sem þarna um ræðir.

Fundi slitið 19:00.

                                                           Fundargerð ritaði Drífa Þórarinsdóttir

 

Samtaka

Mynd augnabliksins

sdc13594.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn