Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Foreldrafulltrúa fundur nóv. 2009

Fundur með foreldrafulltrúum bekkja kl 18:00  02/11/ 2009

Mættir af stjórn:  Árni Jón Erlendsson (ÁJE), Bóthildur Sveinsdóttir gjaldkeri (BS), Ester Jónasdóttir (ES), Valdís Jónsdóttir (VJ), Drífa Þórarinsdóttir (DÞ) og Friðbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir (FJS)

Fjarverandi úr stjórn: Magni R. Magnússon formaður (MRM), Gísli Einar Árnason ritari (GEÁ)

22 foreldrafulltrúar mættu á fundinn.

1)      Stjórn og foreldrafulltrúar kynntu sig í upphafi fundar. Óskað var eftir foreldrafulltrúum fyrir 2. og 9. bekk til að sitja í stjórn, en enginn bauð sig fram.

2)      DÞ kynnti handbók foreldrafélagsins sem er á vef skólans og hvatti foreldra til að heimsækja síðuna reglulega.

3)      Foreldrar hvattir til að koma með hugmyndir að því hvað hægt er að gera með börnunum sem hægt væri að setja inn í handbókina.

4)      Foreldrafulltrúar kynntu vetrarstarfið hingað til. Einhverjir voru búnir að skipuleggja veturinn meðan aðrir voru á byrjunarreit. Foreldrafulltrúar hvattir til að  vera virkir og fá aðra foreldra í lið með sér.

5)      Foreldrar hvattir til að leita til félagsins ef þörf þykir og einnig mæta á fundi félagsins. Einnig hvattir til að fylgjast með hvort einhverjir nemendur séu ekki þátttakendur, ef ekki, að kanna hvers vegna.

6)      Vegna fyrirspurna gerði BS grein fyrir stöðu sjóðs foredrafélagsins og hvernig þeim fjármunum er varið. Foreldrar hvattir til að koma með ábendingar til stjórnar ef þeir hafa hugmyndir um hvernig þeim fjármunum yrði vel varið.

7)      Fyrirspurn kom um hækkun gjalds til foreldrafélagsins í 2000 krónur. BS mun kanna málið. Upphæð á seðli virðist röng þ.e. 2000 krónur en á að vera 1750 og foreldrum hafa borist fleiri en einn seðill þar sem um systkini er að ræða sem á ekki að vera.

8)      Í umræðu um skólaferðalög og safnanir fyrir þeim gerði BS grein fyrir því að foreldrafélagið styrkir hvern nemanda um 1000 krónur í þær ferðir.

9)      Vegna fyrirspurna gerði ÁJE grein fyrir hvernig málin standa er varða Rýmið fyrir unglingastigið og hvaða hugmyndir liggja fyrir.

10)  Vegna fyrirspurna var ákveðið að kanna hvernig málum er háttað varðandi að fá samtökin Blátt áfram til að koma með fræðslu inn í skólann. Leitað verður upplýsinga til skólastjórnenda um hvernig skólinn telur best að staðið sé að þeim málum.

11)  Foreldrafulltrúi 10 bekkjar kom með og kynnti Krullu spil sem nemendur ætla að nýta sér til gamans í næsta hitting. Foreldrafélagið sýndi spilinu áhuga og verður það rætt á næsta fundi.

12)  Umræður um hitt og þetta

 

Fundið slitið 19:15                                                                                       

Fundargerð ritaði DÞ

 

 

Samtaka

Mynd augnabliksins

sdc13602.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn