Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Skólaliðar

Starfsmönnum í blönduðum störfum, eða skólaliðum, er ætlað að leysa af hendi margvísleg hlutverk.  Þeir sinna gangbrautarvörslu þegar nemendur eiga leið í og úr skóla. Þeir taka á móti nemendum þegar þeir koma til skólans og hafa umsjón með þeim sem dvelja þar lengur en kennsla stendur yfir. Þeir sinna frímínútnagæslu innan húss sem utan eftir því sem þurfa þykir.  Þeir sinna vörslu á göngum og hafa eftirlit með nemendum og ýmsum búnaði. Að síðustu sinna þeir ræstingum í húsnæði skólans.

Skyldur skólaliðanna er fyrst og fremst við nemendur. Ef valið stendur á milli þarfa nemendanna og ræstinga, þá hafa nemendur forgang. En nemendum ber þó alltaf að sýna þessu starfsfólki tillitssemi og mega ekki vísvitandi gera störf þess erfiðari. Þess misskilnings gætir gjarnan hjá sumum nemendum, að fólk í blönduðum störfum skuli eingöngu sinna ræstingum. Það er alrangt. Eftirlit og gæsla kemur alltaf í fyrstu röð.

 

Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

img_3080.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 3
Samtals: 99830
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafærni
Hegðun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn