Í Brekkuskóla hefur sú stefna verið tekin að kenna lestur sem byggð er á kennsluaðferðinni Byrjendalæsi á yngsta stigi skólans. Byrjendalæsi er einnig góður grunnur að kennsluaðferðinni Orð af orði sem kennd er í beinu framhaldi af Byrjendalæsi á yngsta- og miðstigi.
Læsi
Hugtakið læsi hefur lengst af verið tengt lestri og skrift eða lestri og ritun. Hin síðari ár hefur inntak þess
víkkað og hugtakið látið taka til hinna ýmsu forma sem málið tekur á sig og hvernig þau tengjast. Í kjölfarið hefur læsi
verið notað sem yfirheiti fyrri lestur, ritun, lesskilning/málskilning, tal og hlustun.
Byrjendalæsi
Byrjendalæsi er samvirk kennsluaðferð í læsi í 1. og 2. bekk. Kennsluaðferðin hefur verið
mótuð og þróuð við Skólaþróunarsvið Háskólans á Akureyri í samvinnu við skóla á Norðurlandi
undir forystu Rósu G. Eggertsdóttur. Viðhorf til náms og kennslu eru í anda hugsmíðahyggju. Áhersla er lögð á fjölbreytni og
sveigjanleikaí námsaðstæðum barnanna.
Grunnstoðir Byrjendalæsis
- Lestur, ritun, tal og hlustun eru samofnir þættir
- Merkingabær viðfangsefni
- Nám er félagslegt ferli
- Unnið út frá gæðatexta
- Einstaklingsmiðun í kennslu
- Nám á aðgreiningar
- Samvinna nemenda í námi
Góðar barnabækur er sá efniviður sem unnið er með í námi og kennslu, jafnt í tæknilegri vinnu með stafi og hljóð sem og vinnu með orðaforða og skilning.
Mikilvægi læsis
Óumdeilt er í nútímasamfélagi að miklu skiptir að skólar á öllum stigum hlúi
sem best að góðri færni allra nemenda í læsi, enda byggir annað nám á góðri lestrarfærni. Því er mikið í
húfi að vel takist til í náminu þar sem framtíðarmöguleikar einstaklingsins eru að miklu leyti komnir undir því að
skólagangan verði farsæl. Mikilvægt er að miðlun þekkingar í formi þróunar- og nýbreytniverkefna, ráðgjöf,
handleiðslu, fræðslu og stuðnings við skólafólk sé aðgengileg.
Þróunarstarf
Samhliða þróun í Byrjendalæsi hefur verið mótað starfsþróunarlíkan sem
tekur til tveggja ára. Á þeim tíma fá kennarar kennslu og öflugan stuðning við að tileinka sér aðferðina. Leiðtogi í
Byrjendalæsi í Brekkuskóla verður Rut Indriðadóttir.
Lestrarkennsluaðferð byggð á Byrjendalæsi var fyrst kennd í Brekkuskóla veturinn 2009 - 2010 í 2. bekk. Skólaárið 2010 - 2011 er ætlunin að innleiða aðferðina á yngsta stigi skólans og um leið að þjálfa kennara til að þróa aðferðina í kennslu.
(Úr kynningarbæklingi Skólaþróunarsviðs HA um Byrjendalæsi)










