Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Áćtlun gegn einelti

Stefnuyfirlýsing

“Brekkuskóli á að vera öruggur vinnustaður þar sem starfið mótast af virðingu og umhyggju.  Skólayfirvöld, starfsfólk, foreldrar og nemendur Brekkuskóla lýsa því yfir að hvorki einelti né annað ofbeldi verður liðið í skólanum.”

Hvað er einelti?

Einelti er endurtekið ofbeldi, líkamlegt eða andlegt, þar sem einn eða fleiri níðast á einum, sem á erfittmeð að verjast. Einelti felur í sér misbeitingu á valdi með þeim afleiðingum að þolanda líður illa og hann finnur til varnarleysis.

Eineltisáætlun – til hvers?

 Til að:

  • fyrirbyggja einelti
  • bæta liðan og öryggi nemenda
  • bregðast við grun um einelti á fullnægjandi hátt

Hvernig gerum við það?

  • Með fræðslu

Nemendur fá kynningu á áætlun gegn einelti í skólanum: Umsjónarkennarar gegna lykilhlutverki við að efla samskipti innan bekkja. Reglulegir bekkjafundir verði í hverjum bekk þar sem rædd eru málefni bekkjarins (starfsfólk sjá 6. kafla í handbók um Olweusarkerfið). Umsjónarkennarar sjái um reglubundna fræðslu um einelti í sínum bekkjum. Til staðar í hverri bekkjarstofu verði veggspjald sem sýni "eineltishringinn" sem grípa má til. Umræður fari fram um eineltishringinn að minnsta kosti einu sinni á hverju skólaári.
Skólastjórnendur eru ábyrgir fyrir fræðslu meðal starfsfólks.

  •  Með starfandi eineltisteymi sem í sitja skólastjórar, deildarstjórar, umsjónarmaður sérkennslumála, námsráðgjafi og tveir fulltrúar kennara.

Eineltisteymi Brekkuskóla hittist fimmtudaga kl.13:20 eða eftir nemendaverndarráðsfund eftir atvikum.

Vísbendingar       Meðferð

Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

img_3020.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 3
Samtals: 99830
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafćrni
Hegđun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn