Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Endurmenntun

Sýn

Brekkuskóli vill leitast við að gefa öllum starfsmönnum sínum kost á að auka starfshæfni sína, þroska og færni í starfi.

Markmið

Helsta markmið endurmenntunar starfsfólks á að vera að auka færni þess til að takast á við þau daglegu viðfangsefni sem upp koma í starfinu á degi hverjum.  Markmið endurmenntunarinnar á m.a. að vera að ný sýn og framþróun eigi að hafa áhrif á starfið í kennslustofunni og því eru framfarir nemenda einn mælikvarðinn á árangur endurmenntunarinnar ásamt því að styrkja samstarf og sameiginlega sýn starfsmanna á skólastarfið. Skólinn vill á grundvelli kenninga og rannsókna þróa vinnubrögð og laða fram breyttar áherslur í skólastarfinu eftir því sem við á.

Framkvæmd

·        Lagðar eru Markviss kannanir fyrir starfsfólk þar sem greinur er áhugi og umbótaþörf starfsfólks fyrir mismunandi námsframboð.  Í framhaldi af því er metin þörf fyrir endurmenntun til lengri tíma, lagt mat á sértæka þörf skólans fyrir fræðslu á tilteknum sviðum og stefna til lengri tíma mótuð í framhaldi af því.  Verkið verði í höndum skólastjórnenda. 

·        Stefnt er að því að endurmenntun fari sem allra mest fram á starfstíma skólans og leitað verður eftir samstarfi við RHA. 

Skýringar

Skv. kjarasamningi kennara skulu þeir nýta 150 klst á ári til endurmenntunar og undirbúnings.  Endurmenntunin skal fara fram skv. endurmenntunaráætlun skólans og þeim áherslum sem eru hverju sinni í umbótastarfi hans.  Þess er ekki getið hvernig 150 stundirnar skuli skiptast milli endurmenntunar og undirbúnings, það er samkomulagsatriði við hvern og einn kennara. 

 

 

Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

sdc10276.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 3
Samtals: 99830
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafærni
Hegðun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn