Nemendur 6. - 7. bekkjar hafa jafnan stundað nokkra fjáröflun og sum árin hafa þau nýtt sér fjármunina til að greiða niður kostnað við ferð í skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði í 7. bekk. Aðal fjáröflunin fer fram með dansleikjahaldi fyrir 5.–7. bekk og með rúnnstykkja- og kaffisölu í svokölluðum morgunmóttökum hjá 1. - 5. bekk í matsal skólans.
10. bekkur stendur fyrir fjáröflun fyrir útskriftarferðalag að vori.
10. bekkur rekur sjoppu í skólanum og stjórnar annarri fjáröflun sem er af ýmsum toga, en allt fer það eftir virkni og hugmyndaflugi nemenda. Einnig safna nemendur fé með rúnnstykkja- og kaffisölu í svokölluðum morgunmóttökum hja 6. - 10. bekk í matsal skólans.
Hefð er fyrir dansleikjahaldi í unglingadeildum og er það 10. bekkur sem hefur veg og vanda af því. Allir nemendur taka þátt í undirbúningi árshátíðar og framkvæmd hennar.
Kaffihlaðborð á árshátíðum yngstu og elstu nemenda er í höndum 10. bekkja. Kaffihlaðborð hjá miðstigi er í höndum 6. bekkinga.
Uppskeruhátíð þemadaga, söngleikjakaffihús og súpufundir. Fjáröflun á þessum viðburðum er í höndum 10. bekkinga.
Barnagæsla. Nemendur í 10. bekk hafa stundum tekið að sér gæslu á fundum Foreldrafélagsins og rennur greiðsla fyrir viðvikið í ferðasjóð þeirra.
Nemendaverslun
Í frímínútum rekur 10. bekkur verslun til ágóða fyrir ferðasjóð. Lögð er áhersla á að selja vörur sem eru taldar hollar og næringarríkar. Ekki er selt sælgæti, gos eða ís. Í vetur munu Svanhildur Sigtryggsdóttir og Kolbrún Friðgeirsdóttir skólaliðar aðstoða krakkana með nemendaverslunina.










