Forvarnarstarf á að vera hluti af daglegu lífi hvers grunnskóla. Brekkuskóli vill stuðla að heilbrigðum lífsháttum og jákvæðri lífssýn nemenda sinna. Innan skólans er því lögð áhersla á eftirfarandi;
- Að fá nemendur til að taka ábyrga afstöðu og ákvarðanir varðandi lífsstíl.
- Að fyrirbyggja neyslu skaðlegra vímuefna.
- Að stuðla að heilbrigðu viðhorfi til eigin lífs.
- Að stuðla að fræðslu um leiðir til heilbrigðs lífs.
- Að efla sjálfstraust og sjálfsmynd nemenda.
- Að hafa til taks upplýsingar um forvarnir.
- Að hafa gott samstarf við aðila utan og innan skólans.
Forvarnaráætlun Brekkuskóla er í mótun en framkvæmd áætlunarinnar felst m.a. í eftirfarandi atriðum:
Virk lífsleiknikennsla í öllum árgöngum skólans.
Bekkjarfundir sem í öllum bekkjum með það að markmiði að efla samskiptahæfni og sjálfstraust nemenda.
Vandlega fylgst með ástundun nemenda og foreldrar látnir vita ef ástundun verður ábótavant.
Allt starf sem fram fer undir merkjum skólans skal vera vímuefnalaust. Verði nemendur uppvísir að neyslu fíkniefna skulu foreldrar látnir vita tafarlaust.










