Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Forvarnir

Forvarnarstarf á að vera hluti af daglegu lífi hvers grunnskóla. Brekkuskóli vill stuðla að heilbrigðum lífsháttum og jákvæðri lífssýn nemenda sinna.  Innan skólans er því lögð áhersla á eftirfarandi;

  • Að fá nemendur til að taka ábyrga afstöðu og ákvarðanir varðandi lífsstíl.
  • Að fyrirbyggja neyslu skaðlegra vímuefna.
  • Að stuðla að heilbrigðu viðhorfi til eigin lífs.
  • Að stuðla að fræðslu um leiðir til heilbrigðs lífs.
  • Að efla sjálfstraust og sjálfsmynd nemenda.
  • Að hafa til taks upplýsingar um forvarnir.
  • Að hafa gott samstarf við aðila utan og innan skólans.

Forvarnaráætlun Brekkuskóla er í mótun en framkvæmd áætlunarinnar felst m.a. í eftirfarandi atriðum:

Virk lífsleiknikennsla í öllum árgöngum skólans.

Bekkjarfundir sem í öllum bekkjum með það að markmiði að efla samskiptahæfni og sjálfstraust nemenda.

Vandlega fylgst með ástundun nemenda og foreldrar látnir vita ef ástundun verður ábótavant.

Allt starf sem fram fer undir merkjum skólans skal vera vímuefnalaust. Verði nemendur uppvísir að neyslu fíkniefna skulu foreldrar látnir vita tafarlaust.

Steinunn Harpa Jónsdóttir hefur umsjón með forvarnarfræðslu í skólanum.

Á haustdögum 2008 var ákveðið að breyta til í forvarnarfræðslu 8. – 10. bekkjar í grunnskólum Akureyrar. Ákveðið var að hætta með MARÍTA fræðslu en í staðinn er komið verkefni sem ber heitið ÞOL ( Þú Og Lífið). Það er trú okkar að fjölbreyttari fræðsla en MARÍTA fræðslan, sé nauðsynleg en þar er eingöngu fjallað um áfengi og vímuefni.

Í ÞOL verkefninumun fólk héðan úr bænum vinna með forvarnarfulltrúa að fræðslupakka fyrir unglinga, kennara og foreldra.

Helstu viðfangsefni eru:

  • Áfengi og vímuefni, leiðbeinendur Anna Hildur Guðmundsdóttir starfsmaður SÁÁ á Akureyri og Gréta Kristjánsdóttir.  
  • Kynferðisofbeldi og kynhegðun, leiðbeinandiGréta Kristjánsdóttir og konur frá Aflinu
  • Geðheilbrigði, leiðbeinandi Ólafur Örn Torfason forstöðumaður sambýla fyrir geðfatlaða á Akureyri og Gréta Kristjánsdóttir
  • Tölvu og farsímanotkun, Gréta Kristjánsdóttir

Fræðslan fyrir 8. og 9. bekk er skipt í tvennt, fyrra skiptið er frá 13. – 20. febrúar og þá verður farið í áfengi og vímuefni og kynferðismálin.

Seinna skiptið er svo frá 16. –  23. mars og þá eru geðheilbrigði og tölvunotkunin tekin fyrir.

Fræðslan fer öll fram í Rósenborg þar sem umsjónarkennari ásamt námsráðgjafa koma með unglingunum.

Fræðsla fyrir 10. bekk verður í maí.

Verkefninu fylgja kynningar til foreldra skólanna.

Nánari upplýsingar gefur Gréta Kristjánsdóttir forvarnarfulltrúi í síma 460-1243 

 

 

 

Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

sept_143.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 46
Samtals: 91995
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafćrni
Hegđun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn