Skólaheilsugæsla
Hjúkrunarfræðingur Brekkuskóla er Sigríður Dóra Sigtryggsdóttir
Sími 462–2525, netfang: sigridurdora@akmennt.is
Aðsetur hjúkrunarfræðings er í stofu 112 sem staðsett er inn af matsal.
Viðvera skólahjúkrunarfræðings veturinn 2010:
mánudaga – föstudaga frá kl. 9 - 13
Skólalæknar eru Magnús Ólafsson 1.-7. bekk og Pétur Pétursson 8.-10. bekk.
MARKMIÐ
Skólaheilsugæslan er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmið skólaheilsugæslu er að efla heilbrigði nemenda og
stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk skólaheilsugæslu vinnur í náinni samvinnu við foreldra/forráðamenn,
skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð nemenda að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar
sem trúnaðarmál. Starfsemi skólaheilsugæslunnar er skv. lögum, reglugerðum og tilmælum sem um hana gilda. Í henni felast skoðanir,
bólusetningar og heilbrigðisfræðsla, ásamt ráðgjöf til nemenda, fjölskyldna þeirra og starfsfólks skólans.
6H HEILSUNNAR - HEILBRIGÐISFRÆÐSLA
Skólaheilsugæsla sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta. Byggt er á hugmyndafræðinni um 6-H heilsunnar sem er samstarfsverkefni skólaheilsugæslunnar og Lýðheilsustöðvar. Áherslur
fræðslunnar eru Hollusta – Hvíld – Hreyfing – Hreinlæti – Hamingja - Hugrekki og kynheilbrigði. Eftir fræðslu fær barnið
fréttabréf með sér heim. Þá gefst foreldrum kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu og hvernig
þau geti nýtt sér það í daglegu lífi.
LYFJAGJAFIR
Skólaheilsugæslan hefur umsjón með lyfjagjöfum skólabarna í samráði við foreldra. Hafa ber í huga að barn getur ekki í
neinu tilviki sjálft borið ábyrgð á lyfjatökunni, ábyrgðin er foreldranna. Börn skulu ekki hafa lyf undir höndum í skólanum nema
í undantekningartilvikum. Slíkar lyfjagjafir geta t.d. verið astmapúst eða insúlíngjafir sem barnið sér sjálft alfarið um.
SLYS OG VEIKINDI
Mikilvægt er að skólaheilsugæslan viti af börnum sem eru með langvinnan og/eða alvarlegan sjúkdóm, s.s. sykursýki, ofnæmi, flogaveiki og
blæðingarsjúkdóma. Ef óhapp eða slys verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi
nemandi að fara á heilsugæslustöð eða slysadeild skulu foreldrar/forrráðamenn fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn
hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í foreldra á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem
gerast utan skólatíma sé sinnt af skólaheilsugæslunni.
TANNVERND
Skólaheilsugæslan býður öllum börnum í 1., 7. og 10. bekk upp á flúorskolun tanna hálfsmánaðarlega yfir
skólaárið. Reglulegt eftirlit með tönnum er mikilvægt og er það á ábyrgð foreldra.
LÚS
Mikilvægt er að foreldrar kembi og/eða leiti að lús í hári barna sinna reglulega, t.d. vikulega. Ef upp kemur lús í skólanum er send
tilkynning um það heim ásamt leiðbeiningum um meðferð. Kembing og meðferð er á ábyrgð foreldra. Nánari upplýsingar um
lúsina lúsina er að finna á http://www.heilsugaeslan.is/?PageID=2047og http://www.landlaeknir.is/?PageID=831. Hér er einnig gott
danskt fræðsluefni um lús - m.a. hvernig á að kemba.
SVEFN
Hjúkrunarfræðingurinn vill benda foreldrum og forráðamönnum barna á mikilvægi þess að þau fái nægan svefn, hvíld og neyti morgunverðar. Skorti þetta fá þau ekki notið þeirrar kennslu og þess starfs sem fram fer í skólanum. Svengd og skortur á svefni og hvíld leiða til þreytu. Börnin þola ekki langa setu og hætt er við að námsefnið fari fyrir ofan garð og neðan.
Hæfilegur svefntími er talinn vera:
5-8 ára börn u.þ.b. 10-12 klst. á sólarhring
9-12 ára börn u.þ.b. 10-11 klst. á sólarhring
13-15 ára börn u.þ.b. 9-11 klst. á sólarhring
Einnig er lögð áhersla á gildi þess að börnin komi með hollt nesti í skólann.
LÍÐAN BARNA
Til að njóta sín í námi verður barninu að líða vel í skólanum. Skólaheilsugæslan hvetur foreldra til að vera vakandi
yfir líðan barna sinna og spyrja þau reglulega um líðan sína, einnig að hafa hugfast að hrós og hvatning styrkja jákvæða hegðun
og auka vellíðan. Foreldrar geta ávallt leitað ráðgjafar hjá skólaheilsugæslunni varðandi andlegt, líkamlegt og félagslegt
heilbrigði barnsins.
Með kveðju og ósk um gott samstarf.
Skólaheilsugæslan










