Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Heimanám

Vart þarf að undirstrika mikilvægi heimanáms, ekki síst í eldri bekkjum. Hlutverk heimanámsins er margþætt, t.d. að þjálfa ýmis atriði sem lögð eru fyrir í skólanum, að æfa lestur, að lesa og kynna sér námsefni til undirbúnings, að vinna upp það sem ekki náðist að klára í kennslustundum og síðast en ekki síst að venja nemendur við ákveðin vinnubrögð og ögun í námi. Því viljum við leggja áherslu á mikilvægi þess að foreldrar líti til með börnum sínum hvað þennan þátt varðar.

Heimanámið er mikill þáttur í starfi nemenda og þeim mun meiri sem börnin eru eldri. Þau eru afskaplega misvel í stakk búin til að vinna slík verk ein og óstudd og axla án aðstoðar þá ábyrgð sem því fylgir að takast á við öll þau ólíku verkefni sem skólinn ætlast til að þau vinni. Því er afar mikilvægt að foreldrar leiðbeini, örvi og hvetji börnin, allt eftir því hvað við á í hverju tilfelli.

Skólinn ætlast til þess að foreldrar fylgist með heimanámi barnanna og beri ábyrgð á því með börnum sínum.  Ef foreldri finnst að heimanám sé á einhvern hátt ekki við hæfi barnsins er bent á að leita samstarfs við viðkomandi kennara um breytingar.  Þá viljum við benda á að mjög mikilvægt er að skapa festu í kringum heimanámið, t.d. með því að sjá til þess að börnin hafi góða aðstöðu og gott næði til að vinna þegar heim er komið.

Best er án efa að koma því þannig fyrir að heimanámið sé sem oftast unnið  á sama tíma. Sá sem snemma temur sér skipulögð vinnubrögð, mun njóta þess síðar á lífsleiðinni.

Skólinn býður 5.-10. bekk upp á aðstöðu til heimanáms utan stundaskrár á bókasafni skólans alla skóladaga samkvæmt opnunartíma safnins.

 

 

 

Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

sept_142.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 46
Samtals: 91995
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafćrni
Hegđun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn