Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Hlutverk

Nemendaverndarráð eða fagráð eins og við gjarnan köllum það, fjallar um málefni einstakra nemenda eða nemendahópa og leitar úrræða á vandamálum sem upp kunna að koma. Skylt er að stofna slík ráð í hverjum skóla. Ráðið starfar með þá sýn að leiðarljósi að mikilvægt sé í öllu skólastarfi og uppeldi að nýta sem best framlag uppeldisvísinda og um leið auka og bæta samvinnu og samskipti milli foreldra, skóla og annarra stofnana sem vinna með og fyrir fjölskyldur og ungmenni.

Hlutverk fagráðsins er þríþætt:       

1)      að stuðla að því að kennslufræðileg og sálfræðileg þekking nýtist sem best í skólastarfinu.

2)      að vaka yfir velferð einstakra nemenda og taka mál sem vísað er til ráðsins til meðferðar og afgreiðslu.

3)      að tryggja sem best aðgengi foreldra að skólanum og efla samvinnu og samstöðu foreldra og skóla um velferð nemenda.

Ráðið heldur vikulega fundi. Í því sitja skólastjórar skólans, deildarstjórar, námsráðgjafi, hjúkrunarfræðingur, sérkennarar og aðrir þeir kennarar sem mál varða hverju sinni. Auk þess skipta fulltrúar skólateymis fjölskyldudeildar með sér að sitja þrjá fundi í mánuði.

Ráðið fjallar um mál einstakra nemenda eftir að því hefur borist skrifleg tilvísun þar að lútandi. Kennarar og annað starfsfólk getur vísað málum til ráðsins, auk foreldra. Þá leitar ráðið liðsinnis fagaðila utan skólans eftir því sem þurfa þykir.

 

Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

sdc11109.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 3
Samtals: 99830
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafærni
Hegðun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn