Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Námsmat

Í upphafi hvorrar annar er áætlun um námsmat birt jafnhliða námsmarkmiðum hverrar námsgreinar í Mentor.

Skólinn kostar kapps um að fylgjast sem best með námi nemenda og árangri kennslunnar. Þetta er fyrst og fremst gert með símati/leiðsagnarmati og er þá fylgst reglubundið með hverjum nemanda fyrir sig. Megintilgangur námsmats er að örva, aðstoða og hvetja nemendur til sjálfsmats um leið og foreldrum og öðrum aðilum sem málið varða eru veittar sem gleggstar upplýsingar um gengi nemandans á hverjum tíma. Stefnt er að því að auka enn frekar á fjölbreytni í  námsmati í skólastarfinu með fræðslu og endurmenntun kennara. Viðmið um námsmat eru í sífelldri endurskoðun. Námsmat Brekkuskóla birtist bæði í umsögn og/eða tölum, en nú einnig í námsferilsmöppum (sjá neðar). Samsetning námsmats fyrir hverja námsgrein er kynnt nemendum í upphafi annar jafnhliða kynningu á námsmarkmiðum. Nemendur og foreldrar geta fylgst með markmiðum, ástundun og árangri á mentor.is.

Námsmatsstofnun leggur skólanum til samræmd próf í íslensku og stærðfræði hjá 4., 7. og 10. bekk  en jafnframt í ensku í 10. bekk. Prófin eru framkvæmd að hausti.

Í lok vorannar gefur skólinn út vitnisburð um nemendur.

Á hverju byggist námsmatið ?

Í Brekkuskóla leggjum við áherslu á leiðsagnarmat sem við skilgreinum sem allt mat sem vísar nemanda, foreldrum og kennara í átt að settu marki. Leiðsagnarmat tengir daglegar matsvenjur við nám og kennslu og samskipti milli starfsmanna, barna og foreldra til að efla nám. Það gerum við með því að :

• Ræða hvað á að læra

• Veita því eftirtekt þegar nám hefur átt sér stað

• Veita gagnlega svörun á réttum tíma sem styður næstu þrep í námi

Fjölbreytt námsmat gefur nákvæmari upplýsingar um frammistöðu hvers nemanda yfir allt kennslutímabilið og það byggist á þekkingarmati, sjálfsmati, jafningjamati, mati á verkefnum, vinnusemi og ástundun. Námsmat sem safnað er upp yfir ákveðið tímabil köllum við símat.

Námsferilsmöppur/sýnismöppur eru hluti af námsmati

Í námsferilsmöppur safna nemendur verkefnum yfir veturinn og eru einstök verkefni hluti af námsmati í 1. - 8. bekk. Sett hafa verið upp viðmið um það hvað möppurnar eiga að innihalda og er umsjónarkennurum ætlað að halda utan um möppuna með umsjónarnemendum sínum.

Dæmi um það sem fara á í möppur nemenda má sjá hér.

Uppbygging námsmats

Gefnar eru umsagnir í 1. – 4. bekk.

Umsögn felur í sér leiðsagnarmat í viðkomandi námsgreinum.

Gefnar eru einkunnir  í 5. – 10. bekk í heilum og hálfum tölum.

Að baki talna í 5. – 10. bekk skal lokapróf að hámarki gilda 50% af lokaeinkunn.
Gefin er umsögn í lífsleikni.

Mat á miðri önn.

Á miðri önn er opnað fyrir leiðsagnarmat í mentorkerfinu sem nemendur ásamt foreldrum sínum annars vegar og kennarar hins vegar svara um námsframvindu og líðan viðkomandi nemanda.


Skimunarpróf

Þau börn sem verið hafa í leikskóla á Akureyri fara í gegnum skimunarprófið Hljóm og berast niðurstöður þess til skólans áður en barn hefur grunnskólagöngu.

1. bekkur: Skimunarprófið Tove Krogh lagt fyrir alla nemendur, bæði að hausti og vori. Lestrarprófið Læsi 1. hefti er lagt fyrir í nóvember og 2. hefti um miðjan febrúar. Stafakönnun er einnig lögð fyrir eftir mati kennara.

1. – 4. bekkur:Stafakannanir Rannveigar Löve ( 1. – 10.) eru lagðar fyrir eftir þörfum. Ef nemendur sýna merki um erfiðleika við lestrarnámið eru  Aston Index og lestrarkannanir Rannveigar Löve lagðar fyrir þá. Mat á lestrargetu eftir Þorstein Sigurðsson eru einnig notuð ef þurfa þykir.

4. bekkur: Samræmd próf í september.

5. bekkur: Nemendur sem víkja verulega frá viðmiðun Fluglæsis í 5.bekk fara gjarnan í GRP 10 lesblindupróf.

1. – 7. bekkur: Reglulegar prófanir í lestri. Hraðlestrarpróf sem mæla lesin atkvæði á mínútu eru gjarnan höfð sem viðmið um árangur. Lesskilningsprófum fjölgar eftir því sem líður á skólagönguna.

7. bekkur: Samræmd próf í september

9. bekkur:GRP 14 lagt fyrir sem skimunarpróf fyrir lesblindu.

Umsjón með skimunarprófum í skólanum hefur Helga Sigurðardóttir

 

 

 

Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

img_3831.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 99831
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafćrni
Hegđun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn