Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Námsráđgjöf

Hlutverk og verksvið námsráðgjafa

Steinunn Harpa Jónsdóttir er námsráðgjafi Brekkuskóla. Skrifstofa hennar er við matsal, við hlið nemendasjoppu. Steinunn er til viðtals eftir samkomulagi og geta nemendur vitjað hennar á skrifstofunni. Þá geta foreldrar einnig leitað til hennar en rétt er að benda á að eðlilegasti farvegurinn er að leita fyrst til umsjónarkennara með þau mál sem varða einstaka nemendur.

Hlutverk námsráðgjafa er að standa vörð um velferð nemenda á sem breiðustum vettvangi.  Námsráðgjöfum er ætlað að starfa í þágu nemenda, leita lausna í málum þeirra og gæta þess að nemendur búi við jafnrétti og að réttlætis sé gætt gagnvart þeim innan skólans.

Námsráðgjafar eru bundnir þagnarskyldu varðandi þær upplýsingar sem þeim er trúað fyrir í starfi sínu, jafnt um aðstæður og hverjir skjólstæðingar þeirra eru.  Á þagnarskyldunni grundvallast traust nemenda sem leita til námsráðgjafa með vandamál af persónulegum og námslegum toga.  Þagnarskyldan er forsenda þess trúnaðar sem nauðsynlegur er í viðkvæmum málum nemenda.  Námsráðgjafi getur aðeins rætt trúnaðarmál við aðra hafi nemandi samþykkt að aflétta trúnaði eða ef námsráðgjafinn metur það svo að líf og heilsa nemandans sé í húfi.

Verksvið námsráðgjafa er eftirfarandi:

Ráðgjöf í námi;

  1.  Ráðgjöf um vinnubrögð og námsaðferðir
  •       Leiðsögn og fræðsla um skipulagningu tíma og áætlanagerð.
  •       Leiðsögn og fræðsla um námsaðferðir og lestraraðferðir.
  •       Leiðsögn og fræðsla um prófaundirbúning.
  •       Leiðsögn og fræðsla um lífsstíl og venjur sem stuðlað geta að aukinni einbeitingu, úthaldi og auknu tilfinningalegu jafnvægi.
  1. Persónuleg ráðgjöf og stuðningur
  •       Stuðningur og ráðgjöf vegna tímabundinna erfiðleika og/eða áfalla í námi eða utan þess.
  •       Stuðningur og ráðgjöf vegna erfiðleika í einkalífi.
  •       Leiðsögn og ráðgjöf um streitu- og kvíðastjórnun.
  •       Tilvísun og samstarf við sérfræðinga í sértækum málum.
  1. Ráðgjöf, hagsmunagæsla og upplýsingamiðlun vegna sérhæfðra réttindamála
  •       Stuðningur við nemendur með sérþarfir.
  •       Samstarf við skólayfirvöld, sérfræðinga og þjónustuaðila í málefnum nemenda með sérþarfir.

 

Ráðgjöf við náms- og starfsval;

  1. Áhugagreining
  • Könnun og greining á áhugasviði einstaklinga, fer ýmist fram með viðtölum eða með notkun mælitækja og kannana.
  1. Mat og greining á námshæfni
  • Greining styrkleika og veikleika einstaklinga með tilliti til náms og starfa, fer aðallega fram með viðtölum við ráðþega.
  1. Miðlun upplýsinga um möguleika og framboð á námi og störfum
  •       Gagnasmíð, gagna- og upplýsingasöfnun og viðhald gagnabanka um nám og störf.
  •       Miðlun og leiðsögn við notkun upplýsinga úr gagnabanka.
  •       Samstarf við náms- og starfsráðgjafa á öðrum skólastigum og við aðrar stofnanir.
  •       Námskynningar, skipulagning námskynninga innan skólans og undirbúningur og uppfræðsla  nemenda fyrir stærri sameiginlegar námskynningar menntakerfisins
  •       Starfskynningar, skipulagning starfskynninga í samstarfi við fulltrúa atvinnulífs og starfsfræðslufulltrúa.
  •       Starfsfræðsla, umsjón með framkvæmd starfsfræðslu í samstarfi við kennara, starfsfræðslufulltrúa og fulltrúa atvinnulífs.

 

Þróunarverkefni;

  1. Skýrslugerð
  •       Skráning viðtala og viðfangsefna.
  •       Úrvinnsla tölulegra upplýsinga um viðtöl og viðfangsefni.
  1. Viðhald fagþekkingar
  •       Þróun nýrra starfsaðferða.
  •       Endurmenntun/símenntun.
  •       Samstarf við aðra ráðgjafa og faghópa.
  •       Handleiðsla/sjálfsskoðun.
  1. Kannanir og rannsóknir

 

 

 

Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

10_nov_095.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 46
Samtals: 91995
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafćrni
Hegđun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn