Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Orð af orði

Orðaforði undirstaða lesskilnings
Mikil fylgni er á milli orðaforða og lesskilnings og rannsóknir sýna einnig marktæka fylgni milli markvissrar orðaforðakennslu og námsárangurs (Marzano, 2004). Að mati kennara er slakur orðaforði ein helsta ástæða þess að lesskilningur og námsárangur nemenda er slakur. Ýmsar vísbendingar eru um að lesskilningi fari aftur, t.d. nýlegar PISA og PIRLS kannanir. Lykilþættir í að efla lesskilning eru m.a. að efla orðaforða (NRP,2000). Góður orðaforði er nauðsynlegur til að tjá hugsun sína á blæbrigðaríkan hátt en er líka mikilvæg forsenda þess að afla sér þekkingar.

Orð af orði
Undanfarin ár hefur Skólaþróunarsvið Háskólans á Akureyri verið að þróa verkefni sem ber heitið Orð af orði. Meginmarkmið þess er að auka skilning í lestri og námi með því að efla orðvitund og orðaforða, fella orðakennslu að hefðbundinni kennslu og gera að föstum lið í kennslu námsgreina. Lögð er áhersla á að vinna eftir tiltekinni hugmyndafræði en virkja kennara til að þróa sínar eigin aðferðir út frá henni. Ráðgjafi í verkefninu leggur til fræðslu og framkvæmdaáætlun, fundar reglulega með kennurum og getur eftir atvikum fylgst með kennslustundum og tekið þátt í kennsluundirbúningi.
Lögð er áhersla á fjölbreytta kennslu og margbreytileg viðfangsefni af ýmsu tagi og í verkefninu er talsvert losað um námsbókarstýrða kennslu. Reynsla er fengin af verkefninu þar sem nokkrir skólar, þar á meðal Brekkuskóli, hafa unnið með það sem heilsársverkefni.

Orð af orði er þróunarverkefni
Þróunarverkefnið Orð af orði var fyrst kynnt á ráðstefnunum Læsi á 21. öld í apríl 2005 á Akureyri. Verkefnið er aðlagað að skólastarfinu og þeirri stefnu sem skólinn hefur að leiðarljósi. Þátttakendur (kennarar) fá í hendur fræðilegt efni um gildi orðaforða fyrir lestur og nám, margs konar kennsluhugmyndir og kennslulíkan fylgir, en eitt af markmiðum verkefnisins er að fá kennara til að haga útfærslu að eigin vinnulagi og aðstæðum og kennsluna að sem flestum námsgreinum. Kennarar þróa síðan vinnulagið í þá átt að það hríslist inn í almenna kennslu. Ráðgjafi kemur reglulega frá Háskólanum á Akureyri og leggur til frekari fræðslu og lesefni, kemur með hugmyndir um kennslu út frá efnivið, sögutextum eða námsefni á viðkomandi stigi. Ráðgjafi leggur einnig til framkvæmdaáætlun með 10 - 12 vikna kennslulotum í samstarfi við skólann, veitir kennurum ráðgjöf og handleiðslu og safnar matsgögnum.

Orð af orði hefur verið í þróun í Brekkuskóla frá árinu 2007.

(Úr kynningarbæklingi Skólaþróunarsviðs HA um Orð af orði)

 

Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

img_1232.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 99831
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafærni
Hegðun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn