Brekkuskóli er í samstarfi við leikskólann Hólmasól, Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri.
Samræða leik- og grunnskóla.
Markmiðið er einkum að koma til móts við þarfir 5 ára barna leikskóla og foreldra
þeirra við undirbúning grunnskólagöngu barnsins. Samstarfið hefur verið ríkulegt og miðað að því að fá sem gleggsta
mynd af því hvað komi nemandanum og foreldrum að mestu gagni.
Samstarfið einkennist af gagnkvæmri virðingu, uppfræðslu, miðlun upplýsinga, lestur efnis sem tengist viðfangsefninu ofl. Í vetur hafa þegar verið ákveðnar tvær heimsóknir í leikskólana á haustönn og þær dagsettar.
Á vorönn er markmiðið að fá 5 ára nemendurna hingað í heimsókn í þrjú skipti og síðan verður þeim boðið í vorskóla í tvo daga í lok maí. Foreldrum þessara barna er jafnframt boðið til samstarfs á vorönn og einnig er hugmyndin að útvíkka samstarfið. Teljum við afar brýnt að samstarfið fari vel fram og auðveldi börnunum að stíga sín fyrstu skref í Brekkuskóla.
Samræða grunn- og framhaldsskóla miðar markvisst að því að auka sveigjanleika í lengd grunnskólagöngu nemenda og gefur þannig færi á fljótandi skilum milli þeirra skólastiga. Með nýjum reglum um samræmd próf hefur samstarf milli skólastiganna farið vaxandi.
Öllum nemendum í 10. bekk Brekkuskóla er boðið í heimsóknir bæði í Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri. Í þessum heimsóknum eru námsbrautir skólanna kynntar, skólarnir skoðaðir og farið yfir inntökuskilyrði hverrar deildar.
Í þessum heimsóknum fá nemendur einnig kynningu á því félagslífi sem stendur nemendum framhaldsskólanna hér í bæ til boða innan skólanna.
Námsráðgjafar MA og VMA hafa komið til okkar á fræðslufundi þegar nemendum og foreldrum eru kynnt samræmd próf og inntökuskilyrði í framhaldsskóla. Samstarf við námsráðgjafa framhaldsskólanna hefur verið gott, auðvelt er að fá tíma fyrir nemendur okkar hjá þeim ef þeir óska eftir því.
Nemendur eiga kost á að stunda fjarnám við VMA og geta þeir fengið þá áfanga metna sem valgrein í Brekkuskóla.
Síðastliðinn vetur buðu framhaldsskólarnir deildarsjórum og námsráðgjöfum í grunnskólum bæjarins til samráðsfundar. Þessir samráðsfundir eru vonandi bara byrjun á enn frekara samstarfi grunn- og framhaldsskóla bæjarins.










