Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Skipulag skólastarfsins

Áherslur í skipulagi kennslu.

Í Brekkuskóla er leitast við að hafa námið fjölbreytt og skapandi og að starfsgleði setji mark sitt á allt skólastarfið. Með einstaklingsmiðaðri markmiðssetningu og námsmati og aukinni fjölbreytni í framkvæmd þessara atriða verður námið samfellt. Áhersla er lögð á að gera nemendum ljóst, hvaða kröfur eru gerðar til þeirra, kenna þeim að gera áætlanir og vinna eftir þeim.

Í Brekkuskóla er lögð rík áhersla á samstarf og samvinnu skólasamfélagsins.

Umsjónarkennarar gegna lykilhlutverki í samstarfi við nemendur og heimili þeirra. Lögð er áhersla á virk samskipti við heimilin og samstarf við þau um markmiðssetningu nemenda.  Þá standa umsjónarkennarar fyrir öflugu starfi innan hvers bekkjar með það að markmiði að skapa samkennd, öryggi og vellíðan í nemendahópnum.

Við leggjum áherslu á forvarnarstarf og heilbrigða lífshætti.

Í 1. – 7. bekk fer kennsla námsgreina fram að mestu hjá umsjónarkennara í öllum almennum kennslugreinum í svokölluðum bekkjartímum. Sérgreinakennsla fer fram í öllum árgöngum í íþróttum, myndlist, textílmennt, tónmennt og heimilisfræði. Í 5. bekk bætast sérkennslutímar við í tungumálum. Í 8. – 10. bekk skipta kennarar með sér námsgreinum eftir sérfræðiþekkingu sinni en hver bekkur hefur sinn umsjónarkennara.

Nemendur í 1. – 8. bekk eiga námsferilsmöppu sem mun fylgja nemendum það sem eftir er skólagöngunnar í Brekkuskóla. Nánar er fjallað um námsferilsmöppur í kaflanum um námsmat annars staðar hér á vefsíðunni.

Gerð námsáætlana og kennsluaðferðir

Við gerð námsáætlana er Aðalnámskrá grunnskóla sem finna má á vef Menntamálaráðuneytisins lögð til grundvallar.

Kennarar viðkomandi námsgreina setja upp námsáætlun árganga eða bekkja sem tekur mið af stefnu skólans og hugmyndafræði um einstaklingsmiðaða kennsluhætti. Nemandi og foreldri setjast einnig niður með kennara í viðtölum og ræða einstaklingsmarkmið nemandans, áhugasvið og áherslur. Þau markmið og þær áherslur eru aftur ræddar í viðtölum í upphafi vorannar á viðtalsdegi.

Við notum Mentor við námsáætlanagerð sem er aðgengilegt og einstaklingsmiðaðra en verið hefur. Stefnt er að því að allar námsáætlanir fari í mentorkerfið á haustönn skólarið 2008 - 2009. Leiðsagnarmat er  eining í mentorkerfinu sem gefur aukna möguleika á samstarfi nemenda, foreldra og skóla við markmiðssetningu og mat á stöðu og líðan nemenda. Þar má bera saman námsáætlanir og meta stöðu hvers nemanda samkvæmt námsáætlununum, en kerfið heldur utan um einstök markmið, ástundun og árangur hvers nemanda.

Leiðsagnarmatið nýtist einnig sem grunnur að foreldra- og nemendaviðtölum þar sem viðtalsblöðin sem áður voru send heim í ágúst verða nú öll rafræn inni á Mentor.

Einstaklingsmiðaðir kennsluhættir eru til í ótal myndum. Margar aðferðir við kennslu stuðla að einstaklingsmiðun. Má þar nefna samvinnunám, kennsluaðferðir sem byggjast á fjölgreindarkenningum, einstaklingsmiðað heimanám, námssamningar, efniskönnunarverkefni, þemanám, þyngdarskipt efni, kennsluforrit, vinna á svæðum eftir áhugasviði, jafningjakennsla, lausnarleitarnám og upplýsingatækni, samræðuaðferðir, sjálfstæð viðfangsefni, söguaðferðin og frjáls verkefni og val (valgreinar). Til að styðja við aðferðirnar eru notuð fjölbreytt námsgögn og er skólinn vel búinn af rituðu efni, ýmsum tækjum og tæknibúnaði. Það er undir kennurum komið hvaða aðferðum þeir beita í kennslunni en meginmarkmiðið er að hver nemandi fái verkefni sem talið er hæfa honum og séu miðaðar við forsendur hans.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

sept_066.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 46
Samtals: 91995
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafærni
Hegðun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn