Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Skólabćrinn

Skrifstofa Skóladeildar er til húsa að Glerárgötu 26,  1.  hæð.  Skrifstofan er opin alla virka daga kl.  8:00  - 16:00. Síminn er 460 1000 (þjónustuborð) og  460 1455 (beinn sími). Vefsíða Skóladeildar

Starfsfólk skrifstofunnar er:

Gunnar Gíslason, fræðslustjóri gunnarg@akureyri.is

Árni Konráð Bjarnason, fjármálastjóri arnik@akureyri.is

Aðrir skólar á Akureyri

Hlutverk skrifstofunnar er:

·      að undirbúa mál sem skólanefnd þarf að fjalla um hverju sinni

·      að fylgja eftir samþykktum skólanefndar

·      að hafa umsjón með sameiginlegum málefnum allra skólanna

·      að vera tengiliður milli skóla bæjarins og annarra bæjarstofnana

·      að annast önnur mál sem sveitarfélögum er ætlað að sinna samkvæmt grunnskólalögum

·      að annast önnur mál sem skólanefnd kanna að fela skrifstofunni hverju sinni.

Komið hefur verið á fót á vegum Skóladeildar vefriti um skólamál á Akureyri er kemur út vikulega og nefnist ”Skóla – akur” Vefritið er í umsjón Gísla Baldvinssonar. Markmiðið með útgáfunni er að auka upplýsingaflæði, kynningu og efla umræðu um það sem efst er á baugi á hverjum tíma í leik- grunn- og tónlistarskólum. Slóðina má finna á vef Skóladeildar.

Skólanefnd             

Skólanefnd fer með málefni leikskólanna og grunnskólanna á Akureyri samkvæmt lögum og reglugerðum um þá, sveitarstjórnarlögum og því sem bæjarstjórn felur henni að öðru leyti. Skólanefnd fer einnig með málefni Tónlistarskólans á Akureyri samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar. Skólanefnd skal sjá um að öll börn á Akureyri njóti lögboðinnar fræðslu. Í störfum sínum ber skólanefnd einnig að sjá um að allir nemendur á skyldunámsstigi hljóti sem besta aðstöðu og jöfnust tækifæri til náms og að skólinn veiti sérhverjum nemanda fræðslu eftir aldri sínum og þroska og í samræmi við gildandi námsskrá á hverjum tíma.

Skólanefnd hefur yfirumsjón með þeirri þjónustu skólanna og því skólatengdu starfi sem veitt er í skólunum utan skólatíma svo sem skólavistun.

Skólanefnd fylgist með og stuðlar að því að skólum sé tryggður aðgangur að sérfræðiþjónustu í samræmi við gildandi lög og reglugerðir.

Skólanefnd skal sjá um að jafnan sé fyrir hendi fullnægjandi húsnæði og annar útbúnaður.

Skólanefnd gerir tillögu til bæjarstjórnar um skiptingu bæjarins í skólahverfi.

 

Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

sdc11107.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 99831
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafćrni
Hegđun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn