Í Brekkuskóla notum við agastjórnunarkerfið "Uppeldi til ábyrgðar". Í stefnunni er mælst til að ákveðin viðbrögð séu notuð þegar barnið fer yfir þau mörk sem skólinn setur. Viðbrögðin eru til að byggja barnið upp með því að leiðbeina því, fremur en til að refsa. Hér fyrir neðan er leiðarvísir starfsmanna skólans í umgengni og viðbrögðum við brotum. Foreldrar geta nýtt sér þennan leiðarvísir í uppeldinu með því að heimfæra hann yfir á umgengni og mörk á heimilinu.
Bæklingur - Leiðarvísir um umgengni og skýr mörk í Brekkuskóla.










