Rís vor skóli hátt við himin,
heiðan morgun, dýrðlegt kvöld.
Gegnum tímans brim og boða
berðu hreinan, fagran skjöld.
Láttu yfir höf og hauður
hljóma glaðvær æskuljóð.
Leiddu í huga Íslands æsku
ást og trú á land og þjóð.
Drottinn, vak þú yfir okkar
æskulýð á hverjum stig,
veit þú honum veganesti:
von og ást og trú á þig.
Bein hans sjónum hærra, hærra
hátt í dags og sólarátt,
lát hann finna í leik og starfi
lands og þjóðar hjartaslátt.
Texti: Magnús Pétursson Lag: Birgir Helgason










