Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Skólinn

Brekkuskóli Akureyri
v/Skólastíg
602 Akureyri

Sími: 462-2525
Fax: 461-2716

Skólastjóri er Jóhanna María Agnarsdóttir
Móttaka og ritari skrifstofu: Steingerður Zóphaníasdóttir skólaritari
Umsjón með skólahúsnæði og útleiga á sal: Árni Jón Erlendsson
Skólahúsnæði og skrifstofa skólans er opin frá kl.07:40 og lokar kl.16.00 alla skóla- og starfsdaga.

Vefsíða: http://www.brekkuskoli.is/ 
Netfang: brekkuskoli@akureyri.is 
Netfang vefstjóra: beggath@akureyri.is 

Ritstjórar vefsíðu eru Bergþóra Þórhallsdóttir aðstoðarksólastjóri, Steingerður Zóphoníasdóttir skólaritari og Stella Gústafsdóttir deildarstjóri.

Nemendur skólaárið 2011 - 2012 eru skráðir 1. september 2009 alls 476. Starfsmenn eru 70.

Skipan árganga innan húsnæðis Brekkuskóla er á þá leið að á neðstu hæð eru heimastofur 1., 2. og 3. bekkjar, á annarri hæð er 4. og 5. bekkur og á efstu hæðinni eru 6. - 10. bekkur.  Skólavistun er á neðstu hæð skólans. Listgreinastofur eru á miðhæð og tölvuver er við hlið bókasafnsins. Í stjórnunarálmu er móttaka og afgreiðsla skólans og skrifstofur, starfsmannaaðstaða, bókasafn, salur, setustofa nemenda, mötuneyti, tónmenntastofa og kennslueldhús.  Íþróttakennsla nemenda í  3. - 10. bekk  fer fram í Íþróttahöllinni, ennemendur í 1. og 2. bekk í íþróttahúsinu við Laugargötu.  Sundkennsla fer öll fram í Akureyrarsundlaug. Nemendum í 1. - 3. bekk er kennt í innilaug.

Inngangar

1.og 2. bekkur notar inngang á neðstu hæð suð/vestan megin í aðalbyggingur
3., 4., 5., 6.,  og 7. bekkur notar inngang norðan megin í aðalbyggingu.
8.,9. og 10. bekkur notar aðalinngang við matsal.

Yfirumsjón með húsnæði Brekkuksóla :                              

Árni Jón Erlendsson er umsjónarmaður skólahúsnæðisins og hafa þarf samband við hann ef kennarar, nemendur eða foreldrar vilja nota einhver rými í skólanum. Vert er að minna á að vera tímanlega í slíku skipulagi.

Brekkuskóli var stofnaður árið 1997 með sameiningu Barnaskóla Akureyrar og Gagnfræðaskóla Akureyrar. Skólinn starfaði í 2-3 byggingum fram að hausti 2005 en þá var komið að þeim tímamótum að allir nemendur og starfsmenn skólans starfa í einu og sama húsinu.

UMGENGNI UM SKÓLANN

Skór og úlpur

Farið er úr skóm í forstofum og snagar fyrir yfirhafnir eru á göngunum. Nemendur eru hvattir til að skilja ekki verðmæti eftir í yfirhöfnum. Einnig er mikilvægt að merkja allan fatnað. Óskilamunir eru varðveittir þar til í lok annar en síðan er farið með þá í Rauða krossinn.

Reiðhjól, hjólabretti, línuskautar og hlaupahjól

Nemendum er heimilt að koma á reiðhjólum í skólann frá 7 ára.  Það er mjög mikilvægt að gengið sé vel frá hjólum við skólann. Reiðhjól eru alfarið á ábyrgð nemenda og forráðamanna þeirra, einnig er það á ábyrgð foreldranna að nemendur noti öryggishjálm. Umferð reiðhjóla á skólalóð á skólatíma er bönnuð.

Hjólaleiktæki önnur en reiðhjól eru á ábyrgð nemenda og forráðamanna þeirra. Því miður verður ekki hægt að geyma þessa hluti inni í skólanum. Umferð/notkun þessara tækja á skólalóð miðast eingögnu við frímínútur/hádegi á malbikaða vellinum austan megin við aðalbyggingu.

Leiksvæði

Leiksvæðin eru aðgreind að nokkru leiti til að reyna að koma til móts við sem flestar þarfir nemenda. Austanmegin við Brekkuskóla eru mörg leiktæki fyrir yngri nemendur.

Á malbikaða vellinum austan megin við aðalbyggingu verður einhver aðstaða fyrir hjólabretti. Einnig er er hægt að vera þar á línuskautum og á hlaupahjólum. Rampur fyrir hjólabretti er á þessu svæði einnig.

Norðanmengin er aðstaða til fyrir körfubolta.

Við innganginn í stjórnunarálmu er hægt að vera í snúsnú og öðrum leikjum, einnig norðanmegin fyrir framan heimilisfræðistofu.

Tímatafla er fyrir gervigrasvöllinn þannig að sem flestir komist að til að spila fótbolta. Einnig eru tveir aðrir fótboltavellir, en ekki verður gerð tímatafla fyrir þá.

Íþróttakennarar skólans hafa gefið út leikjahandbók sem verið er að taka í notkun með því að þjálfa starfsfólk til að leiðbeina nemendum.

Boltar

Allir boltar eiga að vera úti. Fótboltar og leikir með þeim eiga að vera á fótboltavöllunum og á svæðinu austan megin við aðalbyggingu, þó ekki næst húsinu. Hægt er að nota vegginn norðanmegin á aðalbyggingu til leiks með boltum. 

 

 

 

 

 

 

 

Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

sdc14103_1.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 99831
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafćrni
Hegđun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn