Skólinn leitast við að hafa á að skipa vel búnu gagnasafni þar sem nemendur geta komið og aflað sér heimilda, sér til gagns og gamans. Í skólasafninu er mikill fjöldi bóka af ýmsu tagi; kennslubækur, fræðibækur og skáldsögur fyrir fólk á öllum aldri. Á safninu er einnig að finna tímarit, veggspjöld, myndbönd, hljóðsnældur o.fl. Upplýsingatækni er kennd jafnhliða á skólabókasafni og í tölvuveri sem nú er til húsa við hlið safnsins.
Opnunartími skólabókasafnins er sem hér segir:
Mánudaga kl. 8 - 12:40 og 13:10 - 13:50
Þriðjudaga kl. 8 - 9:20, 11:20 - 12:40 og 13:10 - 13:50
Miðvikudaga kl. 8 - 9, 11:20 - 12:40 og 12 - 12:40
Fimmtudaga kl. 10 - 11 og 12 - 12:40
Föstudaga kl. 8 - 11:30 og 12 - 13:10
Skólinn býður 5.-10. bekk upp á aðstöðu til heimanáms utan stundaskrár á bókasafni skólans alla skóladaga samkvæmt opnunartíma safnins.
Safnkennari er Sigríður Margrét Hlöðversdóttir.











