Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Frístund

Hagnýtar upplýsingar fyrir skólaárið 2011-2012.

Börn í 1.-4. bekk skólans eiga kost á gæslu eftir skólatíma dag hvern til kl. 16:15. Frístund er tilboð sem er hluti af skólastarfinu og fylgir heildarstefnu skólans. Frístund er staðsett á neðstu hæð skólahúsnæðisins.
Skrá þarf börn í Frístund fyrir allan veturinn með dvalarsamningi sem tilgreinir hvaða daga og tíma á að nota. Börn geta ekki byrjað í Frístund fyrr en gengið hefur verið frá dvalarsamningi.


Á starfsdögum kennara og þá daga sem foreldraviðtöl fara fram er Frístund opin allan daginn fyrir þau börn sem þar eru skráð. Undantekningar eru þó á þessu, en tveir starfsdagar eru merktir á skóladagatali þar sem Frístund er lokuð fyrir hádegi. Sjá nánar skóladagatal fyrir skólaárið 2009 - 2010. Þá er hún einnig opin fyrir önnur börn á Frístundaraldri þann tíma sem þau hefðu annars átt að vera í kennslu og er þá greitt fyrir hvern klukkutíma. Þetta er háð því að þau hafi verið skráð í slíka gæslu a.m.k. með viku fyrirvara.


Staðfest skráning gildir út allt skólaárið en foreldrar geta breytt dvalartíma með mánaðarfyrirvara sem miðast við 1. og 15. hvers mánaðar.

Gjaldskrá
Skráningargjald 6280 kr. Fyrstu 20 tímarnir.
Eftir fyrstu 20 tímana, hver klst. 314 kr.
Síðdegishressing hvert skipti 112 kr.
Aldrei er hægt að kaupa minna en 20 klst.

Viðmiðunarreglur fyrir Frístund.

Við vekjum athygli á samþykkt skólanefndar þar sem fram kemur að miða skuli við að viðvera barns í skóla, þ.e. kennslustundir og í Frístund sé ekki lengri en 8,5 klst. á dag.

Beinn sími í Frístund er 462-2526
Forstöðumaður Frístundar er Bryndís Baldursdóttir
Netfang; bryndisbaldurs@gmail.com

Annað starfsfólk Frístundar er:

Hólmfríður Stefánsdóttir
Sigríður Brynjarsdóttir

Soffía Tryggvadóttir

Sunna Hafsteinsdóttir

Sæunn Gestsdóttir

Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

img_0702.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 46
Samtals: 91995
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafćrni
Hegđun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn