Skólinn leggur áherslu á að nemendur neyti hollrar og næringaríkrar fæðu. Í skólanum er rekið mötuneyti þar sem nemendur geta keypt sér heitan mat í hádeginu og hvetjum við foreldra eindregið til að nýta sér þá þjónustu.
Skráning í mötuneyti fer fram á Matartorgi sem er skráningarsíða skólamötuneyta.
Hafragrautur er fram borinn í mötuneyti skólans alla skóladaga frá kl.07:45 – 07:58 nemendum og starfsfólki að kostnaðarlausu. Nemendur á unglingastigi eiga einnig kost á að fá hafragraut í fyrstu frímínútum að morgni.
Flestir nemendur á yngsta og miðstigi koma með nesti í skólann og fá sér morgunhressingu í kennslustofum sínum. Hægt er að fá keypta mjólk í áskrift.
Nemendur í 1.bekk geta einnig fengið keypta morgunhressingu. Morgunhressingu fyrir 1.bekk ber að panta á matartorg.is
Hádegisverður
Umsjónarkennarar 1. – 2. bekkja borða með nemendum. Einnig umsjónarkennarar 3ju bekkja fram að áramótum. Kennarar skipta með sér aðstoð í matsal á matmálstímum.
Nemendur neyta hádegisverðar á eftirfarandi tímum:
Kl. 11:20 1. bekkur
Kl.11:40 2. - 3. bekkur
Kl.11:20 6. - 7. bekkir
Kl.12:00 8. – 10. bekkur
Kl.12:20 4.- 5. bekkur
Athygli er vakin á að ekki er ætlast til að nemendur séu með gosdrykki eða sælgæti í skólanum nema við sérstök tækifæri með leyfi stjórnenda.
Nemendur geta einnig borðað nesti að heiman í matsal skólans á matmálstímum eins og þeir sem eru með pantaðan mat.
Mötuneytið er í miðrými skólans. Skrá þarf þá nemendur sem óska eftir þjónustu mötuneytisins fyrirfram og fer skráningin fram mánaðarlega í gegnum internetið á svokölluðu Matartorgi sem er sérstakt skráningarkerfi.
Eingöngu má vera með mat og drykk í matsal skólans. Ekki er ætlast til að nemendur borði á göngum, í setustofu
eða kennslustofum.
Verðskrá mötuneytis
Ef keyptar eru máltíðir alla virka daga mánaðarins í svokallaðri annaráskrift, er hver máltíð á 307 kr.
pr. máltíð.
Stakar máltíðar sem pantaðar eru mánaðarlega eru á 415 kr.
Mjólkuráskrift á haust- og vorönn 2008 er 2000 kr. og morgunhressing í 1. bekk er 4200 kr. á haustönn. Verðin gilda fyrir hvora önn fyrir sig.
Annaráskrift þýðir að barnið er alla daga í mat alla önnina, en foreldrar greiða mánaðarlega af áskriftinni. Skráning í annaráskrift fer fram í ágúst – 20. september fyrir haustönn og í desember fyrir vorönn.
Stakar máltíðir Þeir sem eru með börnin í stökum máltíðum skrá börnin mánaðarlega í mat.
Skólaritari Steingerður (Denna) veitir frekari upplýsingar varðandi pantanir og verðlagningu. Sími 462-2525
Matráður skólans er Júlíus Jónsson matreiðslumaður. Auk hans starfa í mötuneytinu þær Birna Blöndal og Erna Björk Friðriksdóttir.










