Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Mötuneyti

Skólinn leggur áherslu á að nemendur neyti hollrar og næringaríkrar fæðu. Í skólanum er rekið mötuneyti þar sem nemendur geta keypt sér heitan mat í hádeginu og hvetjum við foreldra eindregið til að nýta sér þá þjónustu.

Skráning í mötuneyti fer fram á Matartorgi sem er skráningarsíða skólamötuneyta.

Hafragrautur er fram borinn í mötuneyti skólans alla skóladaga frá kl.07:45 – 07:58 nemendum og starfsfólki að kostnaðarlausu. Nemendur á unglingastigi eiga einnig kost á að fá hafragraut í fyrstu frímínútum að morgni.

Flestir nemendur á yngsta og miðstigi koma með nesti í skólann og fá sér morgunhressingu í kennslustofum sínum.  Hægt er að fá keypta mjólk í áskrift.

Nemendur í 1.bekk geta einnig fengið keypta morgunhressingu. Morgunhressingu fyrir 1.bekk ber að panta á matartorg.is

Hádegisverður

Umsjónarkennarar 1. – 2. bekkja borða með nemendum.  Einnig umsjónarkennarar 3ju bekkja fram að áramótum. Kennarar skipta með sér aðstoð í matsal á matmálstímum.

Nemendur neyta hádegisverðar á eftirfarandi tímum:

Kl. 11:20          1. bekkur

Kl.11:40           2. - 3. bekkur

Kl.11:20           6. - 7. bekkir

Kl.12:00           8. – 10. bekkur

Kl.12:20           4.- 5. bekkur

Athygli er vakin á að ekki er ætlast til að nemendur séu með gosdrykki eða sælgæti í skólanum nema við sérstök tækifæri með leyfi stjórnenda.

Nemendur geta einnig borðað nesti að heiman í matsal skólans á matmálstímum eins og þeir sem eru með pantaðan mat.

Mötuneytið er í miðrými skólans. Skrá þarf þá nemendur sem óska eftir þjónustu mötuneytisins fyrirfram og fer skráningin fram mánaðarlega í gegnum internetið á svokölluðu Matartorgi sem er sérstakt skráningarkerfi.

Eingöngu má vera með mat og drykk í matsal skólans. Ekki er ætlast til að nemendur borði á göngum, í setustofu eða kennslustofum.

Verðskrá mötuneytis

Ef keyptar eru máltíðir alla virka daga mánaðarins í svokallaðri annaráskrift, er hver máltíð á 350 kr. pr. máltíð.
Stakar máltíðar sem pantaðar eru mánaðarlega eru á 475 kr.

Mjólkuráskrift á haust- og vorönn 2011 er 2500 kr. og Ávaxtaáskrift er 5700 kr. önnin fyrir heilann ávöxt. Verðin gilda fyrir  hvora önn fyrir sig.

Annaráskrift þýðir að barnið er alla daga í mat alla önnina, en foreldrar greiða mánaðarlega af áskriftinni. Skráning í annaráskrift fer fram í ágúst – 20. september fyrir haustönn og í desember fyrir vorönn.

Stakar máltíðir Þeir sem eru með börnin í stökum máltíðum skrá börnin mánaðarlega í mat.

Skólaritari Steingerður (Denna) veitir frekari upplýsingar varðandi pantanir og verðlagningu. Sími 462-2525

Matráður skólans er Júlíus Jónsson matreiðslumaður. Auk hans starfa í mötuneytinu þær Birna Blöndal og Erna Björk Friðriksdóttir.


Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

img_2060.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 99831
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafćrni
Hegđun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn