Samkvæmt grunnskólalögum starfar nemendaverndarráð í Brekkuskóla sem kallast fagráð, fagráð fundar ó hverri viku. Á annan hvern fund skiptast fulltrúar frá barnavernd og fjölskyldudeild og skóladeild á að koma.
Námsráðgjafi
Við skólann starfar námsráðgjafi í fullu starfi
Sérkennsla/stuðningskennsla
Meginmarkmið með sérkennslu er að stuðla að alhliða þroska nemenda, bæði andlegum og líkamlegum. Leitast er við að ná þessu markmiði með jákvæðu viðmóti og virðingu fyrir einstaklingnum um leið og lögð eru fyrir verkefni við hæfi. Sérkennsla felur í sér breytingar á námsmarkmiðum, námsefni, námsaðstæðum og kennsluaðferðum. Hún er skipulögð í lengri eða skemmri tíma eftir þörfum nemandans.
Umsjónarkennarar fylla út umsóknareyðublað sem fer til fagráðs ef þeir teljaað nemandi þurfi á sérkennslu að halda.
Fái nemandi greiningu sem segir að hann þurfi stuðning metur skólastjóri þörfina í samráði við kennara, sékennara og deildarstjóra
Einstaklingsnámskrá er sniðin fyrir börn með sérþarfir og grundvallast hún á viðeigandi greiningum.
Helstu próf- og greiningartæki skólans er að finna í skimunaráætlun skólans.
Einstaka nemendum er síðan vísað í alhliða þroskamat og sérhæfðar greiningar til
sérfræðinga utan skólans ef skólinn telur sig ekki geta metið stöðu þeirra með sínum mælitækjum.
Hvernig leita má aðstoðar
Ef foreldrar hafa áhyggjur af námslegri framvindu barna sinna þá geta þeir snúið sér til umsjónarkennara barnsins, námsráðgjafa eða beint til umsjónarmanns sérkennslu helgasig@akmennt.is. Ef um veruleg frávik er að ræða leitar skólann eftir aðstoð frá Skólateymi Fjölskyldudeildar. Sú aðstoð getur verið í formi greiningar eða viðtala sem síðan geta leitt til sérkennslu eða stuðningskennslu. Engu barni er vísað til greiningar nema með samþykki foreldra eða forráðamanna.
Sér- og stuðningskennsla
Sér- og stuðningskennsla í Brekkuskóla fer ýmist fram inni í bekkjardeildum eða í sérstökum sérkennslustofum. Allt fer þetta eftir eðli námsvandans hverju sinni og hvað nemandanum nýtist best. Í sér- og stuðningskennslu felst m.a.:
a. Gerð rökstuddrar námsáætlunar fyrir nemendahóp eða einstakling sem byggð er á upplýsingum um heildaraðstæður nemanda og á athugun og mati á stöðu hans í námi og þroska. Tilgreind skulu langtímamarkmið með kennslunni.
b. Kennsla samkvæmt námsáætlun.
c.Skipuleg skráning og regluleg endurskoðun á námsáætlun og kennslu.
Gerð námsáætlunar fyrir nemendur í sér- og stuðningskennslu er að öllu jöfnu unnin í samstarfi viðkomandi kennara og sérkennara.
Skimunaráætlun Brekkuskóla í læsi og stærðfræði
· 1.bekkur: Skimunarprófið Tove Krogh lagt fyrir alla nemendur, bæði að hausti og vori. Lestrarprófið Læsi 1. hefti er lagt fyrir í nóvember og 2. hefti um miðjan febrúar. Stafakönnun er einnig lögð fyrir eftir mati kennara.
· 1– 4. bekkur:Stafakannanir Rannveigar Löve( 1. – 10.) eru lagðar fyrir eftir þörfum. Ef nemendur sýna merki um erfiðleika við lestrarnámið eru Aston Index og lestrarkannanir Rannveigar Löve lagðar fyrir þá. Mat á lestrargetu eftir Þorstein Sigurðsson eru einnig notuð ef þurfa þykir.
· Regluleg lestrarpróf í 1. -7. bekk
· Læsi 1 – 1 nóvember - sérkennari/umsjónark.
· Læsi 1 – 2 febrúar - sérkennari/ umsjónark.
· Læsi 1 – 3 apríl - sérkennari/ umsjónark.
· Ritunarþáttur Aston Index lagt fyrir 4. bekk á haustönn
· Skimunarpróf Kristínar og Carlsen í lestri og stafsetningu lagt fyrir 5. bekk á haustönn
· Gpr 14 skimunarpróf í lestri og stafsetningu lagt fyrir 9. bekk í október
· Talnalykill
· Samræmd próf í 4.,7. og 10. bekk að hausti
Sérfræðiþjónusta utan skólans
Brekkuskóli vinnur náið með skóladeild og fjölskyldudeild Akureyrarbæjar, þar sem við höfum aðgang að sálfræðingum, sérkennsluráðgjöfum, félagsfræðingum ofl. Auk þessarar skipulögðu þjónustu á skólinn samskipti og samstarf við Skólaþróunarsvið Háskólans á Akureyri, barna- og unglingageðdeild FSA, BUGL, Heilsugæslu Akureyrar, Greiningar- og ráðgjafastöð Íslands, Heyrnar og talmeinastöð Íslands, fjölskylduráðgjafa Hlíðarskóla og fleiri.
Skipulag sérkennslu við Brekkuskóla
1. Þeir sem hafa áhrif á hvort nemendur fá sérkennslu eru t.d. forráðamenn nemanda, umsjónarkennarar, sérkennarar, námsráðgjafi, skólastjórnendur, hjúkrunarfræðingur skólans, nemendaverndarráð skólans og aðrir sérfræðingar, (s.s. greiningarstöð, sálfræðingar og ráðgjafar skóladeildar).
- a) Sérkennslumagn fer eftir heildarkvóta sem skólanum er úthlutað til sérkennslu hverju sinni.
b) Skipting sérkennslutíma milli nemenda er í höndum skólastjórnenda og umsjónarmanns sérkennslu í samráði við umsjónarkennara.
3. Forgangshópar í sérkennslu eru öðru jöfnu:
a) Nemendur sem víkja verulega frá jafnöldrum sínum hvað varðar eðlilegan þroska, hegðun og tilfinningalega örðugleika. Áhersla er lögð á að nemendur tengist ákveðnum bekk, þótt nám þeirra fari að einhverju leyti fram utan bekkjar.
b) Nemendur í yngstu bekkjum skólans í forvarnarskyni til þess að koma í veg fyrir örðugleika síðar á námsferlinum.
Forgangsgreinar sem sér- og stuðningskennsla er veitt í eru íslenska og stærðfræði. Þegar um er að ræða nemendur sem víkja að verulegu leyti frá jafnöldrum sínum í námsgetu í einhverjum greinum, er samin fyrir þá einstaklingsnámskrá í samvinnu við foreldra og samþykkis þeirra leitað.
Fatlaðir nemendur
Reynt er að aðlaga skólagöngu fatlaðra nemenda sem mest að þeirra þörfum. Skólinn hefur gott aðgengi fyrir líkamlega fatlaða nemendur. Undirbúningur og móttaka fatlaðra nemenda er langtíma ferli sem margir koma að. Hver nemandi á sinn heimabekk og umsjónarkennara eins og aðrir. Þannig verða þeir eðlilegur hluti af heild og styrkjast þannig félagslega. Stefna skólans er sú að allir eiga að fá sín tækifæri óháð fötlun og markmiðið er að styrkja þá til sjálfsbjargar. Fulltrúi Fjölskyldudeildar boðar reglulega til funda, með umsjónarkennara, sérkennara/stuðningsfulltrúa og foreldrum fatlaðra nemenda. Þar er farið yfir stöðu mála og litið eftir hvort sett markmið hafa náðst og ný sett. Stuðningsfulltrúi starfar gjarnan með kennara fatlaðra nemenda.
Nýbúakennsla og kennsla tvítyngdra barna
Skólinn fær þjónustu frá nýbúadeild Oddeyrarskóla. Nemendur með annað móðurmál en íslensku fá því miður enga kennslu í sínu móðurmáli. Boðið er upp á viðbótartíma í íslensku fyrir nemendur á unglingastigi og yngri nemendur fá viðbótarstuðning inni í sínum bekkjum. Þeir sem enga íslensku kunna fá einkakennslu.
Umsjón með sérkennslu í skólanum hefur Helga Sigurðardóttirhelgasig@akmennt.is










