Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Kennararáð

Skólaráð

Samkvæmt grunnskólalögum frá 2008 skal starfa skólaráð við grunnskólann sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólanefnd, sbr. 6. gr., getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar.

Skólaráð skal skipað sjö einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúum kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks í viðkomandi skóla og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráðs og ber ábyrgð á stofnun þess. Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra. Fulltrúar nemenda skulu eiga kost á að taka þátt í umræðum skólaráðs þegar fjallað er um velferðar- og hagsmunamál nemenda eftir nánari ákvörðun ráðsins. Auk þess skal skólastjóri boða til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ár.

Fulltrúar kennara: Hanna Dóra Markúsdóttir, Erla Rán Kjartansdóttir og til vara Garðar Þorsteinsson og Arna Heiðmar Guðmundsdóttir.

Fulltrúar annars starffólks er Árni Jón Erlendsson.

Fulltrúar forelddra: Hermína Gunnþórsdóttir, Finnur Friðriksson

Viðbótarfulltrúi úr hópi foreldra: Annette de Vink

Fulltrúar nemenda - kosnir úr hópi nemenda í 8. - 10. bekk:

 

Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

sept_145.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 99831
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafærni
Hegðun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn