Brekkuskóli Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Kynningarbæklingur fyrir verðandi nemendur 8., 9. og 10. bekkjar

Umsóknareyðublað

Ýmsar breytingar fylgja því að fara úr 7. bekk í þann 8. Ein stærsta breytingin er í því fólgin að á unglingastigi er hluti kennslustunda val nemenda þar sem valið er á milli kjörsviðsgreina.

Hver nemandi þarf að skila 37 kennslustundum á viku.  Í kjarna eru 29 kennslustundir, hver kjörsviðsgrein samsvarar 2 kennslustundum á viku því þurfa nemendur að velja 4 greinar.
Kjörsviðsgreinar eru ekki aukagreinar heldur eru þær jafn mikilvægar og skyldugreinarnar og kröfur um ástundun og árangur eru á engan hátt minni.
Gott getur verið að huga að framtíðaráformum strax í efstu bekkjum grunnskólans og þess vegna er mikilvægt að vanda ákvarðanatöku um kjörsviðsgreinar. Það hefur ekki áhrif á rétt nemenda til framhaldsnáms hvaða kjörsviðsgreinar þeir velja sér en það getur auðveldað framhaldsnám að hafa tekið greinar í grunnskóla sem skiptir máli fyrir þá námsbraut í framhaldsskóla sem nemandi stefnir að.

Við boðum hér til kynningarfundar fyrir foreldra nemenda í tilvonandi 8. bekk þar sem farið verður yfir framboð kjörsviðsgreina og fyrirkomulagið útskýrt.

Fundurinn verður á sal Brekkuskóla, miðvikudaginn 28. apríl kl. 17:00-18:00. Hann er hugsaður fyrir foreldra/forráðamenn og nemendur en auk þess förum við yfir þessa hluti með nemendum í kennslustund fyrr um daginn.

Vonumst til að sjá ykkur sem allra flest.

Með bestu kveðju,
Steinunn Harpa, náms- og starfsráðgjafi - steinunnh@akmennt.is
og Sigríður Kristín, deildarstjóri - sigga@akmennt.is


Mentor
Vefpostur starfsmanna

Mynd augnabliksins

_ema_des09_ofl_057.jpg
Salur

Teljari

Í dag: 47
Samtals: 91996
olweus
Umgengnisreglur og skýr mörk
PMT foreldrafćrni
Hegđun eftir litum

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn