Umsóknareyðublað fyrir 8. bekkinga
Umsóknareyðublað fyrir 9. og 10. bekkinga
Ýmsar breytingar fylgja því að fara úr 7. bekk í þann 8. Ein stærsta breytingin er í því fólgin að á
unglingastigi er hluti kennslustunda val nemenda þar sem valið er á milli kjörsviðsgreina.
Hver nemandi þarf að skila 37 kennslustundum á viku. Í kjarna eru 29 kennslustundir hjá 9. og 10. bekk en 31 kennslustund í 8. bekk. Hver
kjörsviðsgrein samsvarar 2 kennslustundum á viku því þurfa nemendur í 9. og 10. bekk að velja 4 greinar en 8. bekkjar nemendur 3 greinar.
Kjörsviðsgreinar eru ekki aukagreinar heldur eru þær jafn mikilvægar og skyldugreinarnar og kröfur um ástundun og árangur eru á engan hátt
minni.
Gott getur verið að huga að framtíðaráformum strax í efstu bekkjum grunnskólans og þess vegna er mikilvægt að vanda
ákvarðanatöku um kjörsviðsgreinar. Það hefur ekki áhrif á rétt nemenda til framhaldsnáms hvaða kjörsviðsgreinar þeir
velja sér en það getur auðveldað framhaldsnám að hafa tekið greinar í grunnskóla sem skiptir máli fyrir þá námsbraut
í framhaldsskóla sem nemandi stefnir að.
Við boðum hér til kynningarfundar fyrir foreldra nemenda í tilvonandi 8. bekk þar sem farið verður yfir framboð kjörsviðsgreina og fyrirkomulagið
útskýrt.
Fundurinn verður á sal Brekkuskóla, miðvikudaginn xx. maí kl. 17:00-18:00. Hann er hugsaður fyrir foreldra/forráðamenn og nemendur en auk þess
förum við yfir þessa hluti með nemendum í kennslustund fyrr um daginn.
Vonumst til að sjá ykkur sem allra flest.
Með bestu kveðju,
Steinunn Harpa, náms- og starfsráðgjafi - steinunnh@akmennt.is
og Sigríður Kristín, deildarstjóri - sigga@akmennt.is










