Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Nýjustu fréttir

Cat kassinn hvað er það?

Hér er samantekt sem lýsir vel út á hvað CAT kassinn gengur og aftast er tengill á vefslóð höfundanna á mismunandi tungumálum.

CAT-kassinn (e. Cognitive Affective Training)  Hugræn tilfinningaleg þjálfun.

CAT-kassinner sérstaklega þróaður til að auðvelda samræður við börn og ungmenni. Markmiðið með notkun CAT-kassans er að styðja samræður við börn og ungmenni  frá 6 ára aldri sem eiga í erfiðleikum með að tjá sig beint um tilfinningar, hugsanir og upplifanir.
Lesa meira

Hvernig kenna góðir kennarar?

Fyrirlesarinn, Ingvar Sigurgeirsson prófessor við Kennaradeild Háskóla Íslands, hefur fylgst með fleiri kennslustundum (hjá öðrum) en flestir aðrir Íslendingar. Kennslustundir sem hann hefur fylgst með eru áreiðanlega vel á annað þúsund og ná til tuga skóla, allra skólastiga og fjölmargra námsgreina. Ingvar hóf að fylgjast með kennslu snemma á áttunda áratugnum í tengslum við námsstjórn og tilraunakennslu. Á árunum 1987 til 1988 fylgdist hann með kennslu í um eitt þúsund kennslustundum á miðstigi grunnskóla í tengslum við rannsóknir á notkun námsefnis og áhrifum þess á kennsluhætti. Undanfarin ár hefur Ingvar tekið þátt í rannsókn á starfsháttum í tuttugu grunnskólum sem hafa leitt hann inn í fjölda kennslustunda.

Í þessum fyrirlestri leitast Ingvar við að bregða upp svipmyndum af minnisstæðum kennslustundum úr þessum reynslubanka og tengja þær hugmyndum um góða kennslu.

Hægt er að fylgjast með  fyrirlestrinum hér

Comeniusarverkefnið

Helena okkar er flogin til Goudaloupe. Hún kemur aftur til kennslu mánudaginn 14. nóvember.
Það verður frólegt að heyra frá ferð hennar...



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn