Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Fréttir

Efni á erlendum tungumálum

Sæl og blessuð öll sömul,

Þegar nemendur nýkomnir erlendis frá hefja nám í íslenskum grunnskólum,
er gott að geta afhent þeim og aðstandendum þeirra upplýsingaefni og annað efni á þeirra tungumálum.

Hér fyrir neðan eru upplýsingar um vefi þar sem hægt er að nálgast slíkt efni.

Á vef Fjölmenningarseturs er efni á erlendum tungumálum um íslenskt samfélag og þ.m.t. menntakerfið:
http://www.mcc.is/english/

T.h. á þessum vef undir Nýir Íslendingar er hægt að nálgast hagnýtt efni fyrir grunnskóla Reykjavíkur. Efnið ætti að geta nýst grunnskólum í öðrum sveitarfélögum:
http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3809/6353_view-2275/. T.v. á sömu síðu má finna Handbók um móttöku nemenda af erlendum uppruna
og fleira gagnlegt.

T.h. á þessum vef er efni fyrir leikskóla Reykjavíkur, en sumt af því mætti nota fyrir leik- og grunnskóla í öðrum sveitarfélögum.
http://reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3806/6354_view-2274/

Neðst á þessari síðu er á nokkrum tungumálum bæklingurinn Spurningar og svör fyrir fjöltyngdar fjölskyldur  sem er um mikilvægi móðurmáls.
Prentið bæklinginn endilega út og afhendið foreldrum.
http://reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3806/6354_view-2290/

Á Fjölvaka er mikið af hagnýtu efni á nokkrum tungumálum:
http://fjolvaki.mcc.is/index-2.html

Neðst á þessari síðu má finna skólaorðaforða á tíu tungumálum:
http://reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-4032/6818_view-3577/

Á vefnum http://tungumalatorg.is/, sem er í mótun, er nú þegar mikið af frábæru efni fyrir nemendur og starfsfólk hinna ýmsu skólastiga.


Kær kveðja,


Hulda Karen Daníelsdóttir
Kennsluráðgjafi
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða
Skúlagötu 21
101 Reykjavík
Sími: +354-411-1600/+354-411-1638
Netfang: hulda.karen.danielsdottir@reykjavik.is


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn