Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Fréttir

Frá Skólaþróunarsviði HA - Námskeið

Á síðast liðnu vori auglýsti Skólaþróunarsvið Háskólans á Akureyri fjögur námskeið fyrir kennara í grunnskólum. Því miður var aðsókn að námskeiðunum svo dræm að fella varð þau niður. Nú hefur verið ákveðið að auglýsa námskeiðin að nýju með breyttum tímasetningum. Námskeiðin sem til boða eru:
1.      Læsi - lestur til náms og skilnings
2.      Íslenskukennsla á efri stigum grunnskóla
3.      Nám og kennsla - fjölbreytni og einstaklingsmiðun
4.      Er söguaðferðin leið til að mæta mismunandi þörfum nemenda í einstaklingsmiðaðri kennslu?
Kennsla á öllum námskeiðunum fjórum er lotubundin sem merkir að námskeiðstímanum er deilt niður í 3 - 5 þriggja til fjögurra tíma lotur. Kennsla fer fram í húsnæði kennaradeildar HA í Þingvallastræti 23 á Akureyri. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á vefsíðu skólaþróunarsviðs www.unak.is/skolathroun.

Umsóknarfrestur um námskeiðin er til 10. september 2009 og er hægt að skrá þátttöku á vefsíðu Skólaþróunarsviðs www.unak.is/skolathroun.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn