Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Fréttir

Hvernig kenna góðir kennarar?

Fyrirlesarinn, Ingvar Sigurgeirsson prófessor við Kennaradeild Háskóla Íslands, hefur fylgst með fleiri kennslustundum (hjá öðrum) en flestir aðrir Íslendingar. Kennslustundir sem hann hefur fylgst með eru áreiðanlega vel á annað þúsund og ná til tuga skóla, allra skólastiga og fjölmargra námsgreina. Ingvar hóf að fylgjast með kennslu snemma á áttunda áratugnum í tengslum við námsstjórn og tilraunakennslu. Á árunum 1987 til 1988 fylgdist hann með kennslu í um eitt þúsund kennslustundum á miðstigi grunnskóla í tengslum við rannsóknir á notkun námsefnis og áhrifum þess á kennsluhætti. Undanfarin ár hefur Ingvar tekið þátt í rannsókn á starfsháttum í tuttugu grunnskólum sem hafa leitt hann inn í fjölda kennslustunda.

Í þessum fyrirlestri leitast Ingvar við að bregða upp svipmyndum af minnisstæðum kennslustundum úr þessum reynslubanka og tengja þær hugmyndum um góða kennslu.

Hægt er að fylgjast með  fyrirlestrinum hér


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn