Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Fréttir

Stoðkennarinn

Stoðkennarinn býður nú upp á fría mánaðaráskrift fyrir kennara og annað starfsfólk skólans að öllum námskeiðum sínum svo þið getið kynnt ykkur þennan framsækna og vinsæla námsvef. Þú þarft aðeins að fylla út UMSÓKNARFORM okkar og við sendum þér aðgangsorð samdægurs.

Ef þið hafið áhuga á að fá kynningu á Stoðkennarnum þá þurfið þið aðeins að hafa samband og við munum sækja ykkur heim við fyrsta tækifæri, ykkur að kostnaðarlausu.

AÐGANGUR NEMENDA:
Sem fyrr þurfið þið aðeins að senda okkur lista með nöfnum og kennitölum nemenda og við munum stofna (eða virkja á ný) aðgang fyrir þá. Einnig þurfum við nöfn, kennitölur og netföng kennara þeirra ásamt upplýsingum um hvaða hópum og hvaða fög þeir kenna. Við hvetjum ykkur til að senda okkur einnig netföng foreldra (skráð í sömu línu og nöfn nemenda) þannig að við getum boðið þeim frían foreldraaðgang.

NÝTT EFNI Á VEF:
Stoðkennarinn nýtti sumarið að vanda vel enda sá tíma þegar helst er hægt að uppfæra vefinn. M.a. hressti hann upp á útlit sitt. Einnig unnum við hörðum höndum að því að undirbúa samstarf Stoðkennarans og A4 sem þið munið heyra meira af síðar.

Nýtt námsefni í dönsku var samið og sett á vefinn. Það inniheldur fjölda texta til lestrar og hlustunar ásamt fjölda verkefna. Námsefnið er einkum miðað við 10. bekkinga og kemur sem viðbót við dönskunámskeiðið. Það er í þróun og mun batna og vaxa á næstu mánuðum.

Einnig sömdum við verkefni sem styðja vel við Sögueyjuna I eftir Leif Reynisson. Verkefni tengd bók númer tvö líta senn dagsins ljós, ásamt verkefnum í stærðfræðilæsi og ritþjálfun.

Ef einhverjar spurningar vakna hafið þá endilega samband með því að senda póst á stodkennarinn@stodkennarinn.is eða hringja í síma 892-4516.

Kær kveðja, 
   starfsfólk Stoðkennarans.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn