Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Áföll

Áfall er atburður sem hefur afgerandi áhrif á tilfinningalegt jafnvægi einstaklings eða hóps. Áhrifin eru það mikil og valda svo miklu álagi að hefðbundnar aðferðir til að bregðast við ástandinu nægja ekki.

Hlutverk umsjónarkennara:
Skv. lögum nr. 91/2008 13.gr. er hlutverk umsjónarkennara m.a:
…..fylgjast náið með líðan nemenda og almennri velferð hans.
Við þær aðstæður sem eru í þjóðfélginu í dag þarf að huga sérstaklega að:

o     gefa sér tíma til að horfa, skynja og skoða
o     gefa sér tíma til þess að hlusta á nemendur og samstarfsmenn
o     gefa sér tíma til þess að gefa ráð
o     byggja upp traust í samskiptum
o     vera vakandi fyrir breytingum á atferli nemenda
o     vera í sambandi við foreldra og heimili
o     leita aðstoðar samstarfsfólks/samkennara/stýrimanna
o     leita aðstoðar stjórnenda/áfallateymisVið Brekkuskóla starfar áfallaráð sem skipað er  skólastjóra, skólahjúkrunarfræðingi, sálfræðingi og umsjónarkennara ef skjólstæðingur er nemandi. Þeir eru sérfræðingar í líkamlegri og andlegri aðhlynningu þeirra sem hafa orðið fyrir áfalli. Í áfallahjálp skal ríkja alger trúnaður milli ráðsins og skjólstæðings þess.

Áfallaráð getur komið m.a. að eftirfarandi málum:

  • Þegar dauðsfall verður í starfsliði, nemendahópi eða skyldmennum þessara aðila.
  • Við skilnað starfsfólks og aðstandenda nemenda.
  • Nýtt foreldri í heimili nemanda. 
  • Alvarleg veikindi.
  • Alvarlegt áreiti og /eða ofbeldi.
  • Óreglu og misnotkun lyfja í heimili viðkomandi.
  • Fjárhagslegt gjaldþrot er snertir heimili nemanda.

Starfshættir áfallaráðs

Ráðið skiptir með sér verkum.

 

Skólastj. og/eða umsjónarkennari skal veita foreldrum/aðstandendum upplýsingar frá áfallaráði.

Ráðið vísar málum til fagaðila utan skóla ef þurfa þykir.

Áfallahjálp

Áfallahjálp er í eðli sínu fyrirbyggjandi aðgerð og er ætlað að:

  • Draga úr áhrifum áfalla.
  • Flýta bata fólks er verður fyrir áfalli.
  • Auka stöðugleika á vettvangi.
  • Gera fólk sem fyrst starfshæft að nýju.

Áfallahjálp byggist á vitneskju um eðlileg viðbrögð einstaklinga og hópa við alvarlegum áföllum sem valda sálrænu álagi hjá þeim sem í hlut á. Áfallahjálp miðar að því að fyrirbyggja alvarleg og langvinn sálræn eftirköst.

Áfallaviðbrögð

Í byrjun eru líkamleg viðbrögð mest áberandi t.d. líkamsskjálfti, hraður hjartsláttur, sviti, ógleði, svimi o.þ.h.  Nálægð og snerting skapa öryggi, draga úr hræðslu og kvíða. Gefið ykkur nægan tíma og látið finna að þið gefið ykkur tíma til að hlusta. Að sýna rósemi og stillingu er smitandi hegðun.  Virðið tilfinningar og viðbrögð í þeirri mynd sem þau birtast. Forðist að nota innantóm orð til hughreystingar.

Rökhugsun getur truflast og óraunveruleikatilfinning kemur gjarnan fram. Tímaskyn brenglast og tilhneiging til að misskilja, mistúlka og draga rangar ályktanir aukast stórlega. Öll fyrirmæli og upplýsingar þurfa að vera rétt og hnitmiðuð,  hikið ekki við að endurtaka þau. Gefið aðeins þær upplýsingar sem liggja fyrir á því augnabliki þegar spurt er.

Hollráð við að veita viðkvæmar upplýsingar:

Skólastjóri skal vera sá aðili sem helst veitir aðstandendum viðkvæmar upplýsingar um slys sem nemandi verður fyrir í skólanum. Hafa skal samband við foreldra (aðstandendur) þegar upplýsingar liggja fyrir. Gefa skal skýrar upplýsingar.  Forðast málalengingar.  Sleppa smáatriðum ( þau koma á seinni stigum.)  Gefa ekki „ímyndaðar upplýsingar”.   Vera hreinskilin. 

Nánari upplýsingar um áfallahjálp og viðbrögð skólans er að finna í sérstakri möppu áfallaráðs.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn