Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Auglýsingar

Viðmiðunarreglur fyrir grunnskóla Akureyrarbæjar

Íþrótta- og tómstundafélög sem Akureyrarbær styður og/eða styrkir stendur til boða að koma upplýsingum um starfsemi sína til nemenda í grunnskólum með því að:

  1. Hengja upp auglýsingar á upplýsingatöflu í skólunum
  2. Koma með bæklinga í skólann sem kennarar dreifa í þeim aldurshópum sem óskað er eftir.
  3. Senda auglýsingar/tilkynningar til skóla sem birtar eru á heimasíðu skólanna.
Almennt er ekki gert ráð fyrir því að fulltrúar félaganna fari inn í námshópa til að kynna starfsemi sína nema í undantekningartilvikum og eru slíkar undantekningar háðar samþykki skólastjóra í öllum tilvikum. Slíkar undantekningar geta tengst skipulögðum viðburðum, þemaverkefnum eða einstökum atburðum í öllum skólunum eða einstökum skólum.

Akureyri 24. ágúst 2009.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn