Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Forföll kennara

Tilkynnið forföll svo fljótt sem auðið er. Ritari, aðstoðarskólastjóri og deildarstjórar taka við tilkynningum um forföll. Besti kostur er að þau berist deginum áður ef svo ber við, en annars eigi síðar en 07:40 að morgni. Kennsluáætlun vikunnar þarf ávallt að vera fyrirliggjandi í stofu eða skúffu kennara. Sérstakt forfallanámsefni er gott að hafa til taks ef ekki hentar að fara í kennslu samkvæmt fyrirliggjandi kennsluáætlun.

Forfallist kennari er ávallt reynt að fá annan kennara til að hlaupa í skarðið. Forföll leiða alltaf til röskunar en leitast er við að láta viðverutíma barnanna halda sér og þá sérstaklega hjá þeim yngri sem ganga fyrir hvað varðar forfallakennslu. Í eldri bekkjum getur komið upp sú staða að nemendur verði sendir heim ef kennara vantar og þá er leitast við að foreldrarnir séu látnir vita af því með tölvupósti.

Unnið er að því að búa nemendum félagsaðstöðu innan skólans sem þau geta dvalið í ef göt myndast í töflu vegna forfalla.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn