Kennarafundir
Kennarafundir eru haldnir á fimmtudögum kl. 14:30-16:00. Á kennarafundum er fjallað um málefni sem varða skólastarfið í heild sinni. Þar koma stjórnendur ýmsum tilkynningum og upplýsingum á framfæri og kennarar hafa tækifæri til að tjá sig um einstök mál er varða skólastarfið.
Stigsfundir
Stigsfundir eru haldnir á miðvikugögum kl. 15:00-16:00 . Á þessum fundum eru til umfjöllunar mál sem eiga einkum við skipulag og kennslu.
Fag- og vinnufundir
Á þriðjudögum kl. 15:00 -16:00 er fundartími sem ætlaður er til fagfunda og vinnufunda þegar ekki eru stigsfundir. Þessi fundartími er einnig nýttur til að bjóða upp á námskeið og endurmenntun sem fellur inn í starfstíma kennara. Við það lengist vinnutímaramminn sem því nemur.
Boðun funda og upplýsingamiðlun
Tölvupóstur er þægileg leið til upplýsingamiðlunar og fundireru gjarnan boðaðir á þann hátt. Bent er á starfsmannalista skólans í Mentor í þessu sambandi og því mikilvægt að starfsmenn komi virkum netföngum til aðstoðarskólastjóra eða ritara og fylgjast daglega með þeim upplýsingum sem send eru í netpósti.
„Á döfinni er uppfært er reglulega og hengt upp á töflu við kaffistofu. Þar er yfirlit yfir það sem framundan er í skólastarfinu næstu daga/vikurnar. Starfsmenn eru hvattir til að koma á framfæri til aðstoðarskólastjóra þeim viðburðum sem framundan eru og gott er að aðrir viti um t.d. ef kennarar stefna á að fara með bekki í skipulagðar ferðir út fyrir skólann o.s.frv. Allir starfsmenn eru ábyrgir fyrir því að miðla upplýsingum sem þeir búa yfir og eiga erindi til fleiri starfsmanna skólans.
Aðstoðarskólastjóri sér um að öll upplýsingamiðlun innan skólasamfélagsins gangi vel fyrir sig og koma má upplýsingum til hans til miðlunar, t.d. á „Framundan-blaði“, Vefsíðu skólans, Fréttabréfi skólans o.s.frv.
Upplýsingar er varða einstaka bekki sér hver umsjónarkennari um. Góð regla er að láta samstarfsmenn lesa yfir fyrir sig það sem maður ætlar að senda frá sér.








